Hondagott umboð.

20 07 2011

Það verður að hæla því sem gott er.
Ég lenti í því að gírkassinn í hjólinu klikkaði það fór fjórði og fimmti gír ásamt því að skiptigaffall skemmdist. Ég lá sveittur á erlendum síðum til að finna ódýra varahluti. Fann svo sem helling af aðilum sem seldu fína hluti og það átti ekki að vera neitt vandamál að fá þetta á klakann á nokkrum dögum. Ég ákvað samt að tékka í umboðinu með verð og afgreiðsluhraða. Nú varð ég fyrst hissa, í fyrsta lagi þá var verðið í umboðinu sambærilegt eða ódýrara en það sem skiptir mig meira máli var afgreiðsluhraðinn, pantað á þriðjudegi og verður til afgreiðslu á föstudag. Og hver segir að það sé dýrt að kaupa orginal varahluti í umboðinu.
Frábær þjónusta.

img_7547-copy.JPG
img_7546-copy.JPG

Óli Gísla



HONDA CRF 450 2011. BESTA HJÓLIÐ.

23 12 2010

11_450mx_honda.jpg 

Motorcycle USA eru búnir að gera sitt mat á besta 450 2011 MX hjólunum. Þarna er fólk, að mínu mati, með vit á því sem þeir eru að gera.

HÉR má sjá videó frá testinu á Hondunni.

Og HÉR er testið á öllum tuggunum..

 

 



Hondagóðir varahlutir

13 12 2010

Bernhard - Honda stendur með sínum í kreppunni.

Hondagóðir varahlutir.
Nýtt hjá Bernhard.
Ef mótorar fara í motocrosshjólunum þá býður Bernhard uppá 30% afslátt af sveifarás,Silender og fl það er hægt að panta í flugi eða skipi á þessum kjörum.
Þetta miðast við að það sé allur pakkin panntaður hjá okkur, hringdu og kannaðu kjörin hjá Bernhard varahlutum s. 5201100
Einnig erum við með orginal stimpilsett og kúplingssett á frábæru verði

varahlhús og lega

. mótor



Hondan græjuð á ísinn.

13 11 2010

Í tilefni MSÍ hátíðar í kvöld var ákveðið að skella sér á ís. Að sjálsögðu þarf að græja tugguna upp fyrir svona fjör.

Nagladekkjunum var troðið undir, keyptar voru handahlífar svo að kuldaboli komist ekki í puttana. Ég ætlaði að setja neiðarádrepara á  hjólið enda átti ég að eiga einn á lager, eftir að ég var búinn að smíða brakket og gera og græja ádreparann kom það í ljós að hann var öfugur,,,,, ekki misskilja, hann virkaði öfugt drap á í sambandi og þar af leiðandi var það búið :( .

En þrátt fyrir það var svaka fjör á ísnum og það yljaði mínu litla hjarta að flest öll hjólin á ísnum voru af réttri tegund, þ.e HONDA. I LIKE!!!!.

hjolad-a-is-012-copy.JPG

hjolad-a-is-006-copy.JPG

Suddalega flott hjól maður.

HjÓli Gísla



Honda CRF 250 2011 test

2 11 2010

Dirt Rider er búið að taka vel á 2011 250 hjólinu. Það virðist sem svo að allt, sem hægt var að setja útá í 2010 hjólinu, sé búið að lagfæra. Það er búið að lagfæra ballansinn í fjöðruninni. 2010 hjólið átti það til að sökkva niður í frammdemparana í beyjum, ventlar í framdempurunum hefur verið breytt til að jafna það smámál út. Einnig er búið að breyta ventlum í afturdempara til að vinna með framfjöðrun. Pústinu var breytt til að ná 94db hávaðamörkum. Vinnslusviðinu í mótornum var breytt til að vinna með breyttu pústi. Afturtannhjól fór úr 48t í 49t. Þessar breytingar hafa gert það að verkum að 2011 250 Hondan er allt að því fullkomin, svo er það annað mál, hvenær er MXhjól fullkomið?

Sjá greinina frá Dirt Rider HÉR.

141_1010_01_ih2011_honda_crf250_web_impressionright_profile_view.jpg





Síður (112): [1] 2 3 4 » ... Síðasta »