Já góðann daginn. 2011 CRF 450 í testi hjá Racer X
3 09 2010Er hjólið gott, já. Er fjöðrunin góð, já. Er viðbragðið gott, já. Er það fullkomið? Það kemur í ljós.
Sjáið videó HÉR.
SLEF!!!!! Flott braut maður.
Flokkar : Fréttir
Er hjólið gott, já. Er fjöðrunin góð, já. Er viðbragðið gott, já. Er það fullkomið? Það kemur í ljós.
Sjáið videó HÉR.
SLEF!!!!! Flott braut maður.
Hondagóðir stóðu sig að venju frábærlega. Strákarnir röðuðu sér í flest öll verðlaunasætin í dag. Þeir sem ekki náðu því voru samt að hjóla hrikalega flott en stundum er það bara þannig að dagsformið er ekki alltaf 100% nú eða hreinlega kemur óheppni inn í pakkann.
MX 85cc
1. Guðbjartur Magnússon. ÍSLANDSMEISTARI 2010
3. Einar Sigurðsson. 3. Sæti til íslandsmeistara 2010.
4. Þorsteinn Helgi Sigurðarson. 2. Sæti til Íslandsmeistara 2010.
MX unglinga.
4. Björgvin Jónsson. 2. Sæti til Íslandsmeistara 2010.
MX 2
1. Eyþór Reynisson. ÍSLANDSMEISTARI 2010.
4. Bjarki Sigurðsson. 5. sæti til Íslandsmeistara 2010. þrátt fyrir meiðsli og missa af þremur keppnum í sumar.
MX Open
2. Eyþór Reynisson. 2. sæti til Íslandsmeistara 2010.
3. Hjálmar Jónsson. 3. sæti til Íslandsmeistara 2010.
Gísli Þór #57 slasaðist um mitt sumar og gat ekki keppt frá því um miðjan Júlí.
Svo í lokin!!! Reynir Jóns var nokkuð brattur í vikunni fyrir mót og skráði sig í MX 40+ og MX 2. En kappinn varð að játa sig sigraðann eftir 1. moto í 40+ flokknum og var ekki meira með.
Þar sem Einar Bjarna er ekki með keppanda á ráslínu núna þá hefur hann það bara næs á kanntinum.
Team Honda Racing þakkar fyrir frábærann dag, flotta braut og æðislegann félagsskap í allt sumar. Hópurinn okkar er búinn að vera samhentur og allir boðnir og búnir að hjálpa hver öðrum. Þökkum motosport.is fyrir afnot af myndunum.
Bernhard-Honda, Dunlop, Ölgerðinni og Poulsen þökkum við fyrir góðann stuðning í sumar.
F.h. Team Honda Racing
Óli Gísla
Eins og vanalega í sumar áttum við frábærann dag í öllum flokkum.
85cc flokkurinn var okkar. Strákarnir voru frábærir og lang, lang bestir.
Unglingaflokkurinn er ekki alveg eins sterkur hjá okkur í bili. EN við eigum samt þann besta þar.
1.Björgvin Jónsson
MX 2 flokkurinn, já góðann daginn. Okkar maður ruslaði honum upp þrátt fyrir að koma slasaður frá útilandinu. Reyndar var það þannig að kappinn ætlaði bara að keyra rólega og taka þau stig sem í boði voru. Nú, ef þetta var róleg keyrsla þá verður gaman að sjá hann keyra á fullu gasi í næstu keppni.
1.Eyþór Reynisson.
MX Open flokkurinn. Þarna skyldi koma í ljós hverjir færu fyrir Íslands hönd á MXON í USA. Eyþór þurfti í rauninni bara að mæta til að vera öruggur um sæti þar enda búinn að standa sig frábærlega í sumar. En Hjalli þurfti að halda vel á spilunum til að tryggja sæti sitt þar. Niðustaðan varð að sjálfsögðu sú að Eyþór fer sem okkar keppandi í MX2 flokknum og Hjalli náði, með mikilli hörku, að tryggja sig þar inni sem keppandi í MX3. Hjalli fór lengri leiðina að þessu, var reyndar með góða stöðu eftir fyrra mótóið, en seinna mótóið var brösótt þar sem keppnin um sætið virtist vera nokkuð hörð. En Hjalli hélt sínu, enda búinn að æfa gríðarlega vel síðastliðið ár.
2. Eyþór Reynisson
4. Hjálmar Jónsson.
Það verður að segjast eins og er að við í Team Honda Racing erum rosalega stolt af öllum drengjunum okkar. Og þá sérstaklega af því að eiga tvo úr okkar hópi sem fulltrúa í MX landsliði Íslands.
Hópurinn okkar var allur frábær og til fyrirmyndar. Í tilefni dagsins bauð Bernhard - Honda okkur uppá pylsur. Ölgerðin hefur styrkt okkur með frábærum drykkjum í allt sumar og toppuðu það með góðu gosi með pylsunum.
Akureyringum þökkum við fyrir frábæra keppni og glæsilega braut.
Svona í restina…
Það voru tveir gamlingjar úr hópnum með í keppninni, þ.e í 40+.
2. Reynir”þriðji” Jónson.
5. Ólafur Þór Gíslason.
Talið er að þeir hafi ekki haft mikla orku eftir keppnina enda komnir vel yfir fertugsaldurinn, þó voru þeir, að sögn, að standa sig mun betur en margir yngri keppendur í B flokki.
Myndir verða settar inn seinna.

Gísli #57 var að koma frá lækni og hann er brotinn á Öxl.
Sem þýðir að hann verður ekki meira með í sumar. Það á ekki af okkur að ganga.
Eitt er á hreinu!!!!!!! Ekki treysta því sem sagt er við ykkur á slysadeildinni……..
Þar var búið að segja við Gísla, á slysadeild, að ekkert væri að, aðeins að hann væri marinn og gæti alveg hjólað ef hann treysti sér. Leytið til sérfræðings strax til að vera viss. EKKERT BULL.
Nýjustu athugasemdirnar