Olíukerfi á CRF450 - Þetta verður þú að lesa

5 04 2002

05.04.2002 | Hákon Orri Ásgeirsson

Fyrir okkur flesta er þetta nokkuð ný hugsun á bakvið olíukerfið á CRF450. Það má samt passa sig á að skilja þetta alveg rétt. Skoðið þetta nánar.

Olíukerfi á CRF450
Einfaldur hlutur sem virtist flókinn.

Nokkuð sniðugt pæling á vak við skipt olíuverkið í nýja CRF450 hjólinu. Olíkt venjulegri vél hefur Hondan sér geymslu fyrir olíu á gírkassa og sér olíu fyrir vélina(ventla, sveifarás og stimpil). Þetta er frábær hugmynd en þó ekki ný af nálinni. Með því að skipta á milli gírkassa og vélarinnar getur eigandinn notað sérhæfða olíu fyrir hvort fyrir sig. Það er engin mengun á milli kúplings-afganga og ventlasóts.
Hverjir eru ókostirnir? Olíuforðinn er miklu minni. Í stað þess að hafa 1500cc af olíu í vélinni, grindinni, síum og dælum er CRF450 aðeins með 650cc af olíu í vélinni og 670cc í gírkassanum. Þetta magn er feykinóg fyrir þetta verkefni en ef magnið minnkar er vandi fyrir höndum, þannig að eigandinn þarf að vera á varðbergi. Venjulega munar ekki miklu þótt vanti nokkra cc á YZF426 en það gerist á
CRF450 getur það kostar að olían eldist mjög fljótt og verði léleg.

MIKILVÆGAR GÍRKASSA UPPLÝSINGAR
Auk þess að hafa skipt olíuverk hefur CRF450 hannað nýtt kerfi til að dreifa olíunni milli gírkassa og kúplingar. Til þess að draga úr heildarviðnámi í gírkassanum fundu verkfræðingarnir þá lausn að hafa lægri olíuhæð í gírkassanum en í kúplingunni. Hugmyndin er að baða kúplinguna í olíu en hafa nógu lítið til að rétt dýfa tannhjólunum í. Þess vegna eru gírarnir frekar hátt miðað við kúplinguna. Þetta er greinilega hannað til þess að auka afköst vélarinnar í afturhjólið, með því að forða tannhjólunum við að þurfa að vaða í djúpum olíupollum - minna viðnám þýðir meiri kraftur…

HVAÐ ER ÞÁ VANDAMÁLIÐ
Það er möguleiki að of lítil olía er á kassanum. Hvernig? CRF-ið tekur 670cc af olíu (þegar það er þurrt) en 590cc ef það er verið að skipta um (einhver olía verður eftir í kassanum þegar tappað er af). Þar sem olíunni er bætt á gírkassann í gegnum gatið sem er á kúplingshúsinu tekur CRF-ið aðeins á móti 400cc áður en hún fer að leka út um kvarða-gatið. Ef þú hættir að setja olíu á þegar olían kemur út um kvarða-gatið mun hjólið aðeins hafa 400cc í stað 590cc. Þegar vélin er sett í gang mun olían hellast yfir í gírkassann en það er ekki næganleg olía. Hvað mun gerast? Í versta falli mun gírkassinn skemmast, í skásta falli muntu sleppa.

HVAÐ ÁTTU AÐ GERA
Hér er hugsanleg lausn. Fylltu olíuna upp að kvarða-gatinu og settu hjólið í gang og láttu það ganga í 3 mínútur. Dreptu á vélinni og bíddu í þrjár mínútur í viðbót. Fylltu á aftur upp að kvarða-gatinu. Best er að mæla 600cc af olíu í mælikönnu og hættu ekki fyrr en allir 600cc eru komnir á kassann. Ef þú hefur tekið kassann í sundur eða hreinsað út með vökva skaltu nota 670cc.



Úrslit í Playstation keppni

2 04 2002

02.04.2002 | Hákon Orri Ásgeirsson

Eftir erfiðar æfingar um Páskana settumst við niður og tókum létta keppni í MX2002 í PS2. Keppnisharkan var ýfið meiri en í brautinni fyrr um daginn. Hér eru úrslitin…

Keppnisfyrirkomulagið var ein supercrosskeppni í Louisana Supercross og ein MX í Kenworthy. Samanlagður tími gildir.

1. sæti Binni Bakari 10.mín 23,70sek
2. sæti Gummi Sig 10.mín 30,77sek
3. sæti Maggi 10.mín 35,77sek
4. sæti Hákon 10.mín 46,00sek
5. sæti Eyþór Reynis 11.mín 33,22sek
6. sæti Þorri 11.mín 40,79sek

Í freestyle keppninni var keppt í 3.mínútur
1. sæti Eyþór Reynis 23.750 stig
2. sæti Binni Bakari 11.200 stig
3. sæti Hákon 6.250 stig
Hinir þorðu ekki í Eyþór.

Við erum að spá í að halda Íslandsmót í MX2002. Fylgist með!