Nokkrir dagar á Norðurlandi
19 06 200219.06.2002 | Hákon Orri Ásgeirsson
Við félagarnir Hákon, Maggi og Þorri erum í sumarfríi á Norðurlandi eystra, og hér er stutt ferðalýsing…
miðvikudagur 12.júní
Hákon mætir á Ólafsfjörð til að taka út brautina, hún reynist algjör snilld og strákarnir hafa náð að búa til braut með réttum hlutföllum; beinu kaflarnir eru passlega langir, stökkin passlega löng og brött, beygjurnar flottar og tractionið helvíti fínt. Hreina loftið á Ólafsfirði gerir það að verkum að hjólið að er frekar lean en allt í lagi samt.
Fimmtudagur 13.júní
Létt æfing tekin í Gassárdal (þar sem endúrókeppnin var ca. 96), geðveikir moldarslóðar og pottþétt endúró. Skotist í Ólafsfjörð um kvöldið til að kíkja á aðstæður.
Þorri, Maggi og Jonna komu svo til Akureyrar um miðnættið og við fórum í bústaðinn okkar í Aðaldal. komið þangað um hálf-tvö.
Föstudagur 14.júní
Horft á HM um morgunin. Hildur og Jonna í sólbaði á pallinum. KTM liðið kíkti í heimsókn og tók trail keppni í garðinum. Jón Kawi kenndi okkur að skipta um dekk.
Laugardagur 15.júní
Endúrókeppni við Húsavík. Snilldarkeppni ef engin grjót hefðu verið.
Hanni varð 16. í fyrra mótóinu en gat ekki keppt í seinna vegna meiðsla í putta.
Þorri festist í drullunni í fyrsta hring og missti alla framúr sér. En í seinna púnkteraði að framan og þetta fjaraði út.
Maggi stoppaði eftir þrjár beygjur til að laga kúplinguna sem hefði eitthvað vanstillst og endaði í 31.sæti. Í seinna endaði maggi í 21.sæti eftir gott start en nokkrar dettur.
Hákon festist í drullunni í öðrum hring og tók a.m.k. 10 mínútur að leysa það með aðstoð Begga Elvars. Seinna klesti Hákon á hjólið hans Steina Tótu meðan hann lá í kantinum vankaður eftir krass, þetta kostaði drjúgan tíma og ekkert varð úr neinu. Í seinni keppninni komst aldrei neinn skirður á þetta og þaðan var Afsláttarkort Tryggingastofnunar notað á sjúkrahúsinu.
Um kvöldið grillaði Denni Bróðir í liðið og allt endaði þetta með feiknarpartíi og svo balli með falskri hljómsveit á Húsavík.
Sunnudagur 16.júní
HM um morguninn, Spánn vann Írland í vítakeppni. Jonna bakaði vöfflur fyrir gesti og gangandi og Eyþór Reynisson sýndi snilldartilþrif í vöffluáti og Playstation 2.
Þorri nenti ekki að bæta dekkið (sjá seinna)
Kvöldmatur á veitingastaðnum Sölku á Húsavík, helv..fínt
Mánudagur 17.júní Þjóðhátíðardagur Íslendinga.
Vaknað klukkan 6.45 til að drífa sig á Ólafsfjörð.
Mætt klukkan 9 til að skipta um dekk og Hákon hjálpaði til að undirbúa keppnina.
Erfitt var að koma sér af stað en um klukkan 12 byrjaði keppnin.
Hanni sýndi góða takta enda brautin að hans skapi. Maggi og Þorri misstu af upphitun og hitnuðu því aldrei. Hákon þurfti aðeins að starfa í keppninni og keppti því aðeins í einu motoi…
Þriðjudagur 18.júní
Hvíldardagur. HM í fótbolta heldur áfram. Kórea vann Ítali.
rigning og rok. Reikningur opnaður á Videoleigunni á Húsavík.
Miðvikudagurinn 19.júní Kvenfrelsisdagurinn
Tilhlökkun mikil í endúró á Reykjaheiði. En…. ekkert ætlar að ganga upp. Alhvít jörð á Húsavík, snjór niðrí miðjar hlíðar og ófært á heiðinni….
Nýtt öflugra loftnet sett á bústaðinn til að ná Sýn betur.
Hákon bakaði gulrótarköku sem fékk 9,7 í einkunn
Flokkar : Greinar



Nýjustu athugasemdirnar