Ljósatími og Almenn lögfræði
23 07 2003Undirbúningur er í hámarki fyrir árlega ferð okkar drengjanna til heimaborgar hamborgara með frönskum á milli….
Akureyri
Planið er að mæta á Akureyri á fimmtudagskvöld til að æfa NacNac og standprjón. Maður verður að falla í hópinn. Núna er ég að lesa mig til í hegningarlögum og búinn að læra orð eins og gerhæfi og lögréttur bara til að vera öllu viðbúinn í kjördæminu. Í kvöld tek ég mér pásu í lögfræðinni og skelli mér í ljós til að venjast sólskininu sem er víst fyrir norðan um þessar mundir.
Íslandsmótið
Það verður gaman að sjá hver mætir ferskur til leiks eftir þessa löngu pásu sem keppendur hafa haft. Nær Valdi að fylgja eftir góðum árangri í bæ hinna forboðnu. Brautin ætti að henta honum, þröng og stutt. Fyrir utan the big four, held ég að Árni CB komi sterkur inn. Ég sá hann á æfingu um daginn og var impressed. Einar púki hefur skrópað á undanfarnar æfingar og mun ekki geta neitt
Húsavík
Á sunnudaginn ætlum við til Húsavíkur og munum við keyra um vegi þeirrar ágætu sýslu er kennd er við Þingeyjar. Eflaust mun leikgleði einkenna okkar menn. Skráðir í túrinn eru Þorri 30, Binni 78, Gunni 56 og Hákon 40
Ef lukkan leikur við okkur munum við mæta í Miklagarð klukkan 19.15 föstudaginn 1.ágúst n.k. Sendiði hjálparsveitina á okkur ef það klikkar.
Undirbúningur
Jæja best að halda áfram að undirbúa. Ný dekk, Motul á kassann, Bassabox í Lænerinn, 14/48, osfrv.
ég er farinn útí skúr…
Flokkar : Greinar



Nýjustu athugasemdirnar