21
06
2006
Davi Millsaps er ungur Honda ökumaður í USA sem hefur verið að slá í gegn í sumar. Hann vann 125 East flokkinn í vetur og….
hefur verið á verðlaunapalli í tveimur keppnum af fjórum. Hann byrjaði með að enda í 9.sæti í fyrstu keppninni og svo
lenti hann í 3.sæti í tveimur í röð. Það leit svo vel út fyrir hann í 4.umferðinni þar sem hann varð 3. í fyrra mótóinu en
kláraði ekki seinna motoið og endaði í 9.sæti.
Hann er núna í fjórða sæti í heildina.
Hann ekur Honda CRF450.
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
19
06
2006
Hið annars sorglega Digital Ísland skánaði mikið í áliti hjá mér í dag. Ég komst að því að Ameríska motocrossið er sýnt á Motors TV ekki nema rúmlega 2 vikna gamlar keppnir. FRáBærT. Var einmitt að sjá James Stewart krassa hressilega á High Point.
Smellið hér til að sjá dagskránna á Motors TV
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
16
06
2006
Strákarnir hjá Motocross Action prufuðu D952 afturdekkið frá Dunlop á dögunum. Óhætt er að segja að þeir séu ánægðir líkt og við hjá HondaRacing.is. Þeir gáfu dekkinu 4/5 stjörnur. Sjá nánar alla greinina…
Julí 2006 mxa teest crew tested
Dunlop D952 rear tire
Normally, a higher price means better performance, but with Dunlop’s D952,
that isn’t the case. This is an affordable tire that performs like a works
tire (when the conditions suit it). If you think you’ve seen the D952
before, your eyes aren’t deceiving you. The D952 is a clone of the retired
Dunlop D752. On the hard side of intermediate ground, the D952 will
outperform the 756 Race Replica. On tracks that run to the hard side of
intermediate, or transition back and forth between soft and hard, we’d opt
for a 952 before a 756.
What’s the squawk? While the D952 worked great on the track, its harder
compund spun on concrete starting pads.
Mxa rating: ****
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
11
06
2006
Mosfellingurinn Valdimar Þórðarson vann fyrstu umferð Íslandsmótsins í Motocross sem haldin var í gær á Ólafsvík. Micke Frisk var annar og Einar Sigurðarson þriðji. Gylfi Freyr Guðmundsson á Honda var svo fjórði. Næsta umferð verður á Álfsnesi 15.júlí en þangað til er eitt bikarmót á Selfossi og enduró á Akureyri.
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
8
06
2006
Það byrjar heldur betur með trukki Íslandsmótið í motocrosssi. Íbúafjöldinn í Ólafsvík á eftir að þrefaldast um helgina þegar allir sjómennirnir koma í land og nokkrir motocross menn mæta á svæðið. Vel á annað hundrað manns munu keppa á mótinu á laugardaginn í nokkrum flokkum. Barist verður í fyrsta skipti um sæti á ráslínu í Meistaraflokki og munu bensíngjafirnar vera snúnar í botn, strax í tímatökum.
Stóra spurningin er sú hvort við fáum nýjan Íslandsmeistara í haust? Mun unga kynslóðin ná að velta KingRaggi úr sessi. Ég spái því.
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
Nýjustu athugasemdirnar