Frábær keppni á Álfsnesi
17 07 2006Sumir fóru nokkuð svartsýnir inní helgina þar sem búist var við rigningu á föstudag og laugardag. Það reyndist rétt og rigni rosalega mikið þessa dagana. Keppnin var færð yfir á sunnudag sem reyndist happadrjúgt. Reyndi rigndi um morguninn og þetta leit ekki vel út, svo stytti upp og brautin þornaði fljótt. Búið var að gera nokkra skurði og dren í brautina sem virkuðu vel og ljóst er að þarf að gera varanlega skurði svo brautin verði betri allt árið um kring. (Skurðirnir voru teiknaðir í upphafi en eru á bið vegna fjármagnsleysis).
Keppnin sjálf var frábær en Gylfi sýndi talsverða yfirburði í MX1 flokknum. Hann náði störtunum flestum og yfirvegaður og hraður. Óhætt er að segja að hann hafi sýnt tæknilega yfirburði.
Spennan var samt mikil, margir framúrakstrar, basl við erfiðar aðstæður og fleira skemmtilegt.
Myndir eru komnar á myndasíðuna.
Flokkar : Fréttir



Nýjustu athugasemdirnar