20
08
2006
Gylfi Freyr Guðmundsson tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í motocrossi á heimavelli í gær. Hann gerði það sem þurfti og vann Valda með einu stigi. HondaRacing óskar honum til hamingju með titilinn…(lesa meira)
Keppnin hjá VíR-unum var þrælfín. Veðrið var gott og allir flokkar á tímaáætlun. Brautin var góð til að byrja með en svo var þurrkurinn svo mikill í rokinu að mikið ryk myndaðist. Vel yfir 100 manns voru með í keppninni og ánægjulegt að sjá allan þennan fjölda og flestir með bros á vör. Spennan var mikil í mörgum flokkum og gaman að fylgjst með hve hratt menn hafa sýnt framfarir á síðustu misserum.
Gylfi Freyr var á Honda CRF450 og tryggði sér titilinn. Viktor Guðbergsson varð svo Íslandsmeistari í 85cc flokki á Honda CR 85 en þó á eftir að dæma í kærumáli í þeim flokki.
Við óskum öllum keppendum og kepppnishöldurum til hamingju með skemmtilega mótaröð.
Myndir munu birtast hér á síðunni innan skamms.
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
17
08
2006
Kíkið á þetta myndband. Flottur akstur á Stewart og Carmichael en endar þó með krassi hjá Carmichael. 10 mb zip skrá en fællinn er á mp4 formati. smellið hér, mælum með hægri smell og …save as
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
16
08
2006
Travis Pastrana tók loksins stökkið ógurlega. Tvöfalt bakkflipp. Eftir margra ára bið lét kappinn vaða. Það tókst 100% og hann vann gull fyrir besta trikkið á X-games.
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
10
08
2006
Síðasta keppni sumarsins í motocrossi fer fram eftir rúma viku á Sólbrekkubraut. Nokkuð líklegt verður að teljast að nýr Íslandsmeistari verður krýndur í ár. Gylfi er með 177 stig, Valdi með 175 og meistarinn Raggi með 154. Spennan er að magnast …jibbbí
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
2
08
2006
Varði og Reynir voru með þátt um Álfsneskeppnina á RÚV í gærkvöldi. Þátturinn var þrælgóður hjá þeim og eiga þeir hrós skilið sem þeir fá hér með.
Sérstaklega var skemmtilegt að fylgjast með ungu strákunum eiga góða spretti, Aron, Helgi Már, Hjalli og svo auðvitað Gylfi sýndu frábæra takta og eru virkilega komnir til að vera á toppnum
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
Nýjustu athugasemdirnar