Honda Gold Wing…..engu líkt.

29 11 2006

Ég rakst á þessar myndir af Honda Gold Wing á netinu. Þær sýna greinilega að þetta hjól er sko engu öðru líkt!

Hlynur



Tilkynning frá Bernhard ehf.

28 11 2006

Við hjá bernhard ehf / Honda viljum óska Heiðari Grétarssyni innilega til hamingju með íslandsmeistaratitilinn í 85cc flokki. Hann er vel að sigrinum kominn og þykir okkur það varpa skugga á gleðina að þörf hafi verið á að fara þessa leið til að krýna réttmætan sigurvegara. Það er okkar ósk að iðkendur íþróttarinnar tileinki sér heiðarlega og drengilega framkomu og séu sportinu til sóma hvort sem er í leik eða keppni.

F.h Bernhard ehf
Hlynur Pálmason



CRF-150R

24 11 2006

Vorum að fá fyrstu Honda CRF-150R hjólin til landsins! hjólin verða til sýnis eitthvað fram yfir helgina eða þar til þau verða afhent nýjum eigendum sem beðið hafa með eftirvæntingu eftir þessu gríðarlega skemmtilega hjóli.
honda-crf150r-2007.jpg

Hlynur



Binni Bling klár fyrir Klaustur 2007!

16 11 2006

Brynjar Gunnarsson öðru nafni “Binni Bling” er búinn að fá í hús factory Honda CRF-250R 2007!
Hjólið er svakalegt, og sérútbúið fyrir langar keppnir eins og Klaustur er þekkt fyrir.
Verðið á hjólinu er ekki gefið upp, en það má öllum vera ljóst að þarna er á ferðinni einstakur kostagripur.
Hjólið verður til sýnis hjá Bernhard ehf í Vatnagörðum 24 í nokkra daga.
Eins og sjá má á þessum myndum hefur ekkert verið til sparað að gera hjólið sem glæsilegast!

p1010005.JPGp1010004.JPGp1010002.JPGp1010001.JPG

Kveðja
Hlynur



Bernhard ehf kynnir MX liðin fyrir sumarið 2007

7 11 2006

Bernhard ehf hefur ráðið í næsta Motocross lið fyrir komandi keppnistímabil 2007.
Lið 1 :
Gylfi Freyr #54 Íslandsmeistarinn(# 1 ) okkar lykilmaður og trúlega besti ökumaður landsins ,hann mun halda áfram að keyra Honda CRF 450R !
Gylfi

Hjalli #139,Rosalega efnilegur ökumaður sem keyrir mjög jafnt og örugglega,hann mun keyra á Honda CRF 450R .
Hjalli

Mikki #23 ,má segja að hann sé komin heim aftur,var með yfirburði á 250F í MX1 síðasta sumar,en hann mun keyra á Honda CRF 450R.
mikki

Gummi #259 ,Roslalega efnilegur ungur ökumaður með mikla framtíð fyrir sér,átti gott season 06 og kemur sterkur inn !,hann mun keyra á Honda CRF 250R.
Gummi

Lið 2 :
Jóikef #177 ,reynslubolti úr motocrossinu og enduro,óheppinn með season 2006 vegna meiðsla en kemur sterkur inn seasonið 2007 ! , hann mun keyra á Honda CR 250R.
JóiBinni Morgan #434 ,nýliði með mikinn áhuga,hann mun keyra á Honda CRF 250R.
b.morgan
Maggi Sam #21,Sterkur hlekkur og hefur verið sterkur í endoru og MX,hann keyrir á Honda CRF 450R.
maggi
Robbi Toy #69 stóð sig vel seasonið 2006 og gerir enn betur 2007,hann keyrir á Honda CRF 250R.
Robbi

Kristófer Daníel #717 kemur sterkur inn í sumar !,hann keyrir á Honda CRF 250R.
Kr�stó

Lið 85 cc :
Björgvin #391 kláraði allar keppnir seinasta sumar og verið að æfa stift fyrir næsta season.
Bjöggi
Eyþór #899 Fylgist vel með þessum í framtíðinni !!
Eyþór
Friðgeir Óli #105 sterkur hlekkur í 85 cc liðið.
Frikki
Guðmundur Kort #99 hann á eftir að gera góða hluti.
Gummi kort
Jón Bjarni #365 var að gera góða hluti sumarið 2006,en lenti í meiðslum…kemur eitursterkur inn !
Jón B

Atli Már #669 kemur sterkur inn í sumar,sandur er hans líf ! hann verður á Honda CRF 450R.
Atlimar
Reynir #3 Guðfaðirinn verður með á Honda í sumar,en þó ekki af fullum krafti eins og síðastliðinn ár vegna hnémeiðsla.
Reynir

Enduro :
Siggi Nikk,þessi á eftir að gera góða hluti á Honda CRF 450X í sumar !
siggi

Liðstjórar :
Einar Bjarna og Hlynur !
Einar og hlynur

Og hvað er lið án mekka ? :
Símon aka Folinn ,og Þorgeir aka Toggi. Þessir tveir hafa haldið uppi liðinu með ótrúlegum áhuga og dugnaði,Hondaracing væri ekkert án þeirra ! takk strákar ;)
Simon
toggi

Go HONDA RACING !!!!
Bernhard

Kv Binni Morgan





Síður (2): [1] 2 »