CRF 150R álgrind í smíðum

21 12 2006

Já það leið ekki á löngu en menn færu í þennan pakka fyrir þetta snildar hjól !

150 álgrind

Þeir hjá BBR Motorsports hafa eytt ótal tíma í það að smíða álgrind fyrir nýja 150 hjólið,þetta mun án efa hjálpa því með betri eiginleikum í beygjum og ” tracki ” ! ,en það á í engum erfðileikum eins og er,því hjólið er geggjað stock .

Þeir hafa einnig hannað nýja vatnskassa sem hjálpa til með að minnka þyngdarpunkt.

Þeir eru byrjaðir að taka við pöntunum en verðið er ekki komið út ennþá,svo hafirðu áhuga á að eignast svona grind fyrir þig þá er að hringja í þá í BBR ( heimasíða BBR )

kv
Binni Morgan



Jólagjöf hjólafólksins…….

18 12 2006

08m51ewa800z_500.jpg

Fyrir þá sem eru með hjól með rafstarti þá er þetta jólagjöfin í ár! þetta er hleðslutæki frá Honda sem er sérstaklega hugsað fyrir bifhjól, fjórhjól og fl. leiktæki. Tækið er tölvustýrt og má hafa í sambandi í langan tíma í einu. Tækið kostar aðeins 7.913 kr. og veggfesting kostar 1.000 kr. nánari upplýsingar í varahlutadeild Bernhard ehf s. 520-1100.



Breytingar í Honda liðinu…..

18 12 2006

Sú breyting hefur orðið á Honda liðinu að Bjarni Bærings hefur ákveðið að aka ekki fyrir Honda / Bernhard í mótum í sumar.
Bjarni hefur verið sterkur hlekkur í Honda liðinu undanfarin 3 ár ásamt því að vera óþreytandi í að sinna hinum ýmsum verkefnum tengdum sportinu.
Við þökkum Bjarna kærlega fyrir samstarfið og vonum að honum gangi vel í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur.

Hlynur



Fyrsta Team Bernhard / Honda kvennaliðið!

18 12 2006

honda-racing-logo.JPG

Stofnað hefur verið fyrsta kvennalið Team Bernhard / Honda. Liðið er skipað frábærum ökuþórum sem eiga klárlega eftir að gera góða hluti í sumar! Liðið er þannig skipað:

Freyja Leopoldsdóttir #999
Hafdís Svava Níelsdóttir #117
Karen Anna Guðmundsdóttir #202
Berglind Þráinsdóttir #767

Þessar stelpur eru eldhressar og hörku duglegar og ég held að strákarnir megi nú fara að passa sig í sumar!

Hlynur



Jói Kef hvað…………….

12 12 2006

Þessi kann allavega að prjóna…….





Síður (2): [1] 2 »