23
05
2007
Um næstu helgi, nánar tiltekið á laugardaginn 26.maí er haldin hin árlega Trans Atlantic Offroad Challenge endurokeppni. Aldrei hafa fleiri keppendur verið skráðir til þáttöku en nú og eru þeir yfir 500…!!
Þetta er 6 klst erfiður þolakstur og vil ég hvetja ykkur til að fá ykkur bíltúr og kíkja á keppnina sem er æsispennandi.
Honda liðið spilar mjög stórt hlutverk í þessari keppni þar sem við höfum yfir að ráða mörgum af bestu ökumönnum landsins í enduro og motocross. Umgjörðin í kring um keppnina og keppnissvæðið er mjög mikil, og mikill fjöldi áhorfenda hefur mætt á svæðið undanfarin 5 ár sem keppnin hefur verið haldin, en þetta er 6 árið í röð!!
Ekki er búið að ákveða hvort selt verði inn á svæðið, en það verður líklega í mesta lagi 500 kall á mann ef það verður gert og ég lofa því að þið skemmtið ykkur mjög vel
Því ef fólk nennir að labba aðeins um svæðið má sjá ýmsa stíla á hjólamennskunni þegar keppendur eru orðnir þreyttir og verða of skrautlegar byltur….
Ræsing í aðalkeppninni er kl 12:00, Unglinga og kvennakeppnin er klukkan 9.
Endilega fáið ykkur bíltúr og sýnum okkar fólki stuðning með því að mæta! Spáin er víst mjög góð fyrir þetta svæði um helgina og ætti veðurfar ekki að vera afsökun ;O)
Vinsamlegast prentið þetta út fyrir þá sem ekki hafa aðgang að tölvupósti ;O)
Sendi eina mynd með frá ráslínu í fyrra og ef þið smellið á linkinn fyrir neðan fáið þið fleiri myndir frá keppninni.

kveðja, Hlynur
Athugasemdir : 3 Athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
7
05
2007
Nú eru um 300 myndir frá Króknum komnar á netið hérna hjá okkur. Smellið á MYNDIR…
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
2
05
2007
Stórskemmtilegur viðburður átti sér stað um síðastliðna helgi 28 Apríl.
Þá var haldin Track day fyrir bæðið hjóla og bílamenn upp á keflavíkur flugvelli í samstarfi við Umferðastofu,LÍA og MSÍ.
Fjölmargir mættu á svæðið til þess að fá að spíta í og læra ökutæki sín. Fyrir hönd Honda Racing mættu þeir Binni Morgan á CRF 250R á supermotard gjörðum og Stefán eða Stebbi Blade eins og við köllum hann á Honda CBR 1000RR” special colour ” race hjóli sínu.
Stebbi sem er búin að eiga fjöldan allan af hjólum og er gamall reyndur í sportinu sagði að 1000RR hjólið hafi verið ótrúlegt !, látið af stjórn og höndlað eins og 600RR hjól, en virkað eins og ekkert sem hann hafi prufað.

Honda CBR hjólið sem Stebbi ekur er 176 kg og 172 Hö og er því næstum um hestafl á kíló að ræða…….
Mögulegt er að við sjáum meira af Stebba á mílunni í sumar.
Binni ók hins vegar á Honda CRF 250R motocross hjóli sínu á supermotard gjörðum, og var brautin sniðin fyrir þau hjól !, mikið um krappar beygjur með stuttum beinum köflum, og urðu mörg stærri hjólana að láta í minni pokan fyrir litla hjólinu á SM gjörðunum.

Honda Racing þakkar þeim félögum fyrir sína þáttöku upp á velli.
Myndir er að finna ” hér “
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
1
05
2007
Núna eru öll Honda mótorhjólin kominn á Honda.is heimasíðuna, ásamt verðum.
Hægt er að fá ýtarlegar upplýsingar um hvert hjól þegar smellt er á það.
Einnig er hægt að nálgast nýja mótorhjólabæklinginn á PDF-formi, þegar smellt er á auglýsingaborðann á hjólasíðunni.
Slóðin beint á mótorhjólin er hér
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
16
02
2007
Hin heimsfærða “Klaustur” enn einu sinni. Frábært stuð.
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : dagatal
Nýjustu athugasemdirnar