Videó af Bjarka #670

26 06 2007

Já hann Bjarki okkar sem er í MX85 en hann keppir á Honda CRF 150R hjóli, gerði lítið myndband af sér þegar hann var í whipp æfingum fyrir norðan í Akureyrar brautinni.

Sjá videó ” hér “ 



Púka hittingur í Álfsnesi

22 06 2007

Mánudaginn 25 júní nk kl 18:00 verður haldin púkahittingur á Álfsnesi. Við erum að halda uppá nýja lagasetningu sem gerir yngstu kynslóðinni loks kleift að stunda motocross íþróttina – loksins. Hittingurinn er hugsaður fyrir ökumenn á hjólum af stærðinni 50cc-85cc. Þessi allra minnstu og byrjendur. Allir krakkar fá veitingar í boði 10/11 og SS, Íslensk-Ameríska býður uppá nammi og Honda gefur verðlaunapening fyrir alla skráða þátttakendur. Ekið verður í byrjenda- og unglingabrautinni og verða þær lokaðar þeim sem ekki eru skráðir í púkahittinginn frá kl 18 á mánudagskvöldið. Ekki þarf að kaupa miða í brautina. Kennari verður með tilsögn á staðnum fyrir þá allra yngstu. Og í lokin fá allir krakkar motocross-verðlaunapening fyrir þátttökuna! Foreldrar - búið börnin vel og munum að fara varlega.  Að sjálfsögðu eiga börnin að hafa allar öryggishlífar. Við sjáum um öryggið á svæðinu og við ætlum að halda góðu orðspori á íþróttinni. Til þess að taka þátt þarf að skrá viðkomandi. Þeir sem vilja skrá sig sendið póst sem allra fyrst á spitfire@vortex.is



Enduro Akureyri fór vel

18 06 2007

Við áttum nokkra menn í 3-4 umferð í Íslandsmeistaramótinu í enduro um helgina, þar mörðu Jóikef og Binni Morgan sigur í tvímennings eftir góða herkænsku og eru nú í öðrusæti overall Íslandsmeistaramótinu.

Einnig var frábært að sjá Bjarka # 670 á CRF 150 hjólinu sínu í Baldursdeildinni með stóru strákunum, endaði Bjarki í 16 sæti af 32 keppendum……frábær árangur hjá stráknum !.

Einnig var Atli Már #669 í Baldursdeildinni en hann endaði 5 í fyrra híti, en var svo flaggaður út með svörtu flaggi í seinna eftir að hafa verið vísað vitlaust inn í pitt þegar hann óskaði eftir að fá að skipta um handfang, atvikið verður kært til MSÍ.

Annars frábær árangur hjá okkar mönnum, og þeir munu sína sig og sanna í Ólafsvík 30 Júní.



MX tíðin byrjar vel

12 06 2007

Já okkar fólk í Hondaracing / Team Bernhard stóð sig með prýði um síðustu helgi. Keppendur voru samheldnir og báru saman bækur sínar eins og alvöru liðsfélögum ber, og bar liðsandinn í Honda tjöldunum af á svæðinu.

Hjalli #139 átti frábært moto í MX1 og endaði 3 overall……frábært Hjalli !

Einnig átti Mikki #23 góð moto og sýndi stundum frábæra takta í drullunni, en hann endaði 5 overall í drullunni.

Gylfi Freyr #54 íslandsmeistarinn okkar frá því í fyrra átti ekki góðan dag, en hann hefur átt í erfiðleikum með öxlina á sér í sumar, Hann fór úr axlarlið í kepnninni en öxlinni var kippt í liðinn aftur og áfram hélt hann að hjóla. Gylfi er mikill keppnismaður og vonandi nær hann að jafna sig á þessum axlarmeiðslum fljótt.

í MX2 var hörð barátta eins og alltaf, og þurftu 250F hjólin virkilega að hafa fyrir því að aka í brautinni, en þar endaði Binni Morgan #434 (síðasti móhikaninn) fyrstur overall, en þetta var hans fyrsta keppni í meistaraflokk og því mikill persónulegur sigur fyrir hann.

Einnig áttu þeir Magnús Samúelson #21 og Guðmundur Þórir #259 flotta takta, en Maggi endaði fimmti þrátt fyrir að finna sig ekki, og Guðmundur þórir endaði sjötti.

MX85 var dómineruð af Eyþóri Reynis #899 sem sýndi sko að hann er laaaaaangbestur, en hann vann öll sín moto og átti leynivopnið frá Yamaha Luke Capsticks lítið í tilvonandi meistaran !

Einnig átti Jón Bjarni Einarsson #365 góð moto og endaði þriðji overall.

Einnig áttu Guðmundur Kort #99 og Friðgeir Guðna #105 góðan dag, en þeir enduðu í tólfta og þrettánda sæti af 21 keppanda.

Í MX125 eigum við tvo keppendur, hann Gísla Ólafsson #377 sem er ungur og efnilegur, hann átti góðan dag í drullunni þrátt fyrir að drullan sé ekki hans sterkasta hlið, eins og hjá mörgum öðrum, en hann endaði 21 sæti af 31 keppanda.

Einnig er það hann Björgvin Jónsson #391, hann átti í einhverju basli í drullunni og viðbjóðnum, en hann mætir grimmur í næstu keppni.

Stelpurnar okkar áttu góðan dag, en mikil barátta er orðin í stelpu flokknum og gaman að sjá þær keyra. Guðný Ósk #611 var búin að eiga frábæran dag og hefði skilað sér í annað sætið overall, ef ekki hefði gleymst að fylla á bensín…….sumt getur gleymnst í stressinu í pittinum :) , en þrátt fyrir það endaði hún í fimmta sæti!

Einnig áttu Karen #202, Freyja #899, Berglind # 767 og Hafdís #117 góðan dag !, En Hafdís endaði í sjötta sæti overall, Freyja í áttunda sæti, karen í ellefta og Berglind í tólfta af 17 keppendum. Frábær árangur hjá þeim !


Í MXB var okkar maður Atli Már #669 í öðru sæti overall, átti frábær moto en gerði örlítil mistök í síðasta heat og varð af fyrsta sætinu, gengur betur næst !

Bernhard ehf óskar öllum keppendum til hamingju með daginn og þeim árangri sem þeir náðu, og munið, æfingin skapar meistaran !.



Íslandsmótið í motocross að hefjast

9 06 2007

Þá er komið að fyrstu keppni ársins í Motocrossi og fer hún fram á Álfsnesi. Mikil spenna er í öllum flokkum og ber þar hátt titilvörn Gylfa Freys Guðmundssonar sem vann titilinn í fyrra á Honda CRF 450.

Annars er metþátttaka í þetta skiptið eða 136 keppendur skráðir til leiks þar af 25 konur. Margar af stelpunum eru á Honda hjólum og verða þær eflaust í toppbaráttunni eins og alltaf.

Keppt er í 6 flokkum og er búist við spennandi keppni allan daginn en það helsta úr dagskránni er eftirfarandi:

11.15 Kvennaflokkar
11.30 Unglingaflokkar
14.00 Meistaraflokkur MX1
16.45 Verðlaunaafhending

Mætið endilega á svæðið og fylgist með spennandi keppni.

gfg

 





Síður (2): [1] 2 »