Ólafsvík að baki !
2 07 2007Okkar fólk stóð sig með eindæmum vel um helgina í annari umferð íslandsmótsins í MX.
í MX85 skilaði Eyþór #899 og Bjarki #670 sér í fyrsta og annað sætið, rosalega gaman að sjá þessa stráka keyra..og hraðinn úff
!. Annars endaði Jón Bjarni #365 í fimmta, Bergsteinn #702 í því Sjötta, Guðmundur Kort #99 í því sjöunda og Friðgeir #105 í því fjórtánda.
Stelpurnar okkar voru að standa sig gríðarlega vel !, en hún Guðný #611 endaði í þriðja sæti og er að gera flotta hluti. Hafdís #117 endaði í sjötta, Berglind í því ellefta,Freyja #999 í því sextánda og Karen #202 í því sautjánda.
Annars mætti nýtt team í kvenna flokknum -Team Foxy !, en það skipar þeim Andreu Thorodssen #604 á CRF 100, Höllu Berglind Jónsdóttir #797 á CR 85, Unu Svövu Árnadóttir #718 á CRF 150. En þær stóðu sig eins og hetjur í sinni fyrstu keppnni, og eiga svo sannarlega framtíðinni fyrir sér í motocrossinu.
Stelpurnar okkar !

í MXB náði Atli #669 að landa fyrsta sætinu !, flottur akstur á stráknum.
í MX2 varð það Binni Morgan #434 sem landaði fyrsta sætinu, fyrsta árið hjá honum byrjar vel !, annar var Guðmundur Þórir #259
Í MX1 voru hlutirnir ekki að ganga upp hjá okkar mönnum. Gylfi #1 lenti í því að detta og var ekki meira með, Mikki #23 átti slæman dag, lenti í samstuði í moto nr 2, og samstuði við annan ökumann í þriðja og seinasta moto, en hann endaði daginn þó í sjötta sæti sem verður að tlejast flottur árangur !. Hjalli #139 var ekki að finna sig og datt í moto nr 2, það setti strik í reikning hjá honum í síðasta moto, en hann endaði í sautjánda sæti.
sjáumst á Akureyri í þriðju umferð íslandsmótsins í MX.
Flokkar : Fréttir



Nýjustu athugasemdirnar