Púkabúlla um helgina!

30 08 2007

Það verður sjoppa opin í Bolöldu um næstu helgi 1 og 2 september og að þessu sinni rennur ágóðinn til yngstu iðkendanna í sportinu. Við viljum því endilega biðja keppendur, starfsmenn og áhorfendur um að kíkja í Púkabúlluna og styrkja gott málefni! Á boðstólnum verða heitar samlokur, nammi, kaffi ofl! Engin þörf á að nesta sig upp fyrir daginn!! 

Hondafólk!! Að sjálfsögðu styrkjum við púkana!!! Sjálfboðaliðar í búðarkonu/karlastörf verða vel þegnir! Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Berglindi í síma 8959599. 

Kveðja, Púkabúllunefndin



4 umferðin í íslandsmótinu

25 08 2007

Án vafa hafa strákarnir okkar í MX85 verið okkur til sóma og haldið uppi merki Hondaracing í sumar.

Áhugi þeirra á sportinu er okkur hinum mikil hvatning og sýnir okkur að með miklum vilja og miklum stuðning, þá getum við allt !

Eyþór Reynis #899 hefur sýnt það og sannað að hann er bestur !, af því verður ekkert skafið. Einnig hefur norðan maðurinn okkar Bjarki Sig #670 verið að bæta sig svakalega mikið og sýnt rosalegan akstur á köflum, og nú bara seinast í sólbrekku keyrði hann sig úr langsíðasta sæti upp í það fimmta eftir að hafa misst keðjuna af hjólinu.

jón Bjarni Einarsson #365 hefur verið að ná sér upp úr meiðslum eftir siðasta sumar og með hverju mótinu á fætum öðru byggist sjálfstraustið meira upp og aksturinn verður alltaf flottari og flottari.

Guðmundur Kort #99 og Friðgeir Guðna #105 hafa verið ómissandi hlekkir í liðinu, og er stíllinn og aksturinn ávallt að verða betri og flottari. þessir fimm strákar hafa verið að rúlla þessum flokki upp í sumar og verður vonandi enginn breyting á.

Úrslitin urðu þessi í sólbrekku í 4.Umferðinni.

Eyþór #899 1.Sæti

Jón Bjarni #365 2.Sætið

Bjarki Sig #670 4.sætið

Guðmundur Kort #99 5.Sætið

Friðgeir Guðna #105 7.Sætið

MX1 og MX2.

það hefur ekki allt gegnið upp hjá A liðinu, meiðsli og annað hefur sett strik sinn í reikninginn og því ekki hægt að segja að þetta hafi verið gott sumar hjá okkar strákum.

Mikki #23 hefur þó verið að berjast vel, en þó átt í smá erfiðleikum með öxlina á sér, hann vonandi þó nær að skila sér 5 sætið overall eftir fimmtu og síðustu umferðina í Bolöldu.

Mikki endaði í 10.Sæti í sólbrekku
Gylfi #54 (1) Íslandsmeistarinn frá því í fyrra hefur átt í miklum erfiðleikum með öxlina á sér og áhvað að keppa ekki meira á 450cc hjóli sínu og áhvað því að flytja sig niður um flokk, hann hefur því verið að keppa í MX2 og staðið sig með ágætum.

Gylfi endaði í öðru sæti í MX2.

Binni #434 hefur verið frekar stöðugur keyrari í sumar, skilað sér í mark í öllum keppnum og næstum því ávallt á palli. Ninni #434 endaði í þriðja sæti í Sólbrekku.

Hjalli #139 hefur ekki átt gott season í sumar,en átt þó góða spretti annað slagið. Hnéið þó verið að hrjá drenginn og því ekki fundið sig á 450cc hjóli sínu. Hjalli #139 endaði áttundi í sólbrekku.

Stelpurnar:

Guðný Ósk #611 hefur verið að gera góða hluti á sína fyrsta ári í motocrossinu, hún hefur fengið góð aleiðsögn frá Jóhannes eða Jóakef #177 eins og all flestir þekkja hann. hún er í fimmta sæti overall í og henni mun bara fara framm á næsta ári. Guðný endaði fjórða sæti í sólbrekku.

Oddný Stella #522 hefur einnig verið að gera góða hluti, tekið þátt í öllum mótum sumarsin og keyrt vel. hún endaði í sjöunda sæti í sólbrekku.

Berglind #767 er gall hörð, verið frábær liðsmaður í röðum Honda Racing, ávallt vel hress og peppar upp mannskapinn. Gert flotta hluti í sumar og keyrt vel. Hún endaði í þrettánda sæti.

karen #202 hefur keyrt vel í sumar og ávallt mætt í öll mót, hún endaði í fjórtánda sæti.

Freyja #999 hefur eins og karen, mætt í öll mót og staðið sig með ágætum, hún átti þó slæma byltu í sólbrekku og var ekki meira með.

Í MX Unglinga hefur Gísli Óla #377 verið okkar maður, gert frábæra hluti og verið að bæta sig gríðarlega með hverju mótinu. Sannarlega sterkur hlekkur í okkar röðum.

Hann endaði í 9. sæti í Sólbrekku.

Sjúmst eld hress í baráttu hug í síðustu umferð íslandsmótsins í MX í Bolöldu.



Unglingalandsmóti UMFÍ á Hornafirði

8 08 2007

Var að setja Myndir frá Unglingalandsmóti sem var sunnudaginn 5.ágúst

Þar sem Unglingalið Hondu kom ansi sterkt inn :)

Eyþór sýndi þar frábæra takta sem ekki hafa sést hér á landi áður.

img_1689.jpg

Linkur á vefalbúm



3 umferð yfirstaðin

8 08 2007

Þriðja umferð íslandsmótsins í motocross fór fram um verslunarmanna helgina í á Akureyri. Veðrið var ekki með besta móti þar sem það rigndi og frekar kalt, greinilegt að haustið er í nánd. En MX85 liðið okkar átti þennan dag og sýndi það og sannaði að þeir eru lang bestir !. Bjarki #670 landaði fyrsta sætinu eftir feikilega spennandi viðureignir við Eyþór #899 sem endaði annar, voru ófá andköfin þegar þeir skiptust á að leiða mótóin. Jón Bjarni #365 landaði þriðja sætinu og er allur að koma til eftir bakbrotið sem stoppaði hann af á síðasta ári. Frábær árangur hjá okkar drengjum !!!

Stelpurnar áttu ágætis dag, Guðný #611 endaði fimmta, Berglind #767 í því tólfta, Oddný Stella #522 í því þrettánda,  Karen #202 endaði tuttugasta, Freyja #899 í því nítjanda.

MX Unglinga, þar áttum við einn ökumann, hann Gísla Óla #377, strákur sem hefur verið að bæta sig rosalega. Hann endaði í 15 sæti af 28 ökumönnum.

Í MXB var það Atli #669 sem endaði í öðru sæti.

Í MX2 endaði Gylfi #54 í öðru sæti, og Hjalli #139 í því þriðja.

Í MX1 áttum við bara einn ökumann, Mikki #23 hann stóð sig með ágætum, endaði þriðji í fyrsta móto, en svo fóru hlutir að klikka í tveim seinni. En hann endaði sjötta sæti.

Helling af myndum er að finna á www.icehobby.com, www.icemoto.com og www.mxsport.is



Gott hjól til sölu !

2 08 2007

Til sölu Honda CR 125 árg ’07


Hjólið er í topp standi og er mjög vel með farið og hefur fengið mjög gott viðhald,

það er nýr stimpill í hjólinu,

nýleg dekk,

one industries límiðakitti,

x-ring keðja,

Renthal twin wall stýri,

Race tech í framdemparana getur fylgt hjólinu og einnig er hægt að fá það með lækkuðu sæti.

Þetta er snilldar hjól fyrir byrjendur sem og lengra komna

Uppl í síma 865-8288





Síður (2): [1] 2 »