26
09
2007
REGLUR FYRIR LANGASANDSKEPPNINA
1. Hjól verða að vera skráð og tryggð. ( Mjög áríðandi og verður fylgt eftir þar sem keppnin er innanbæjar )
2. Keppnisgjöld og skráning verður greiðslu og skráningarkerfi MSÍ.
3. Öll umfrerð annara en keppnistækja og starfamanna er óheimil á sandinum. ( Pitthjól, krakkahjól, trialhjól) BANNAÐ…) Lögreglan verður á svæðinu.
4. Prjónkeppni, keppendur ráða hvort tekið er af stað úr kyrrstöðu eða með atrenu frá ákveðnum punkti, sá vinnur er keyrir lengst á afturdekkinu. Lesa meira… »
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
23
09
2007
Hér má sjá mynd af HPSD stýrisdemparanum sem kemur í 250R og 450R 2008 hjólunum frá Honda og er þetta í fyrsta sinn
sem fjöldaframleitt motocrosshjól kemur með slíkum búnaði sem staðalbúnað frá framleiðanda!
hægt er að sjá video og fleira hér.
Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á báðum hjólunum og verða birtar nánari upplýsingar um það fljótlega.
Þess má geta að hjólin verða á einstöku verði og kostar CRF-250R 749.000.- og CRF-450R 799.000.-
Með hjólunum fylgir veglegur varahlutapakki eins og td. stimpill, hringir, loftsía, pakkningasett og fl.
Fyrstu 250R hjólin koma í byrjun nóvember en stutt er í fyrstu 450R hjólin svo vertu með þeim fyrstu
til að tryggja þér frábært hjól á frábæru verði :O)
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
9
09
2007
Lokaumferðin á Íslandsmótinu í motocrossi fór fram í Bolöldu 1. september í leðju og úrhellis rigningu. Að þessu sinni tóku einungis 3 Hondastelpur þátt í opna kvennaflokknum þar sem nokkur afföll hafa orðið í þeirra röðum sökum meiðsla. En úrslitin urðu eftirfarandi:
Guðný #611 lenti í 5.sætinu í síðustu umferðinni og endaði hún einnig í 5.sæti á Íslandsmótinu. Oddný Stella #522 lenti í 9. sæti en endaði í 8. sæti á íslandsmótinu, vel af sér vikið hjá 15 ára nýliða! Berglind #767 lenti í 11. sæti en endaði í 10.sæti á Íslandsmótinu. Hafdís #117 gat ekki tekið þátt í nema 2 keppnum á Íslandsmótinu í sumar sökum meiðsla. Hafdís er hörkuhjólari og náði t.d. gullinu í opna kvennaflokknum á Klaustri í vor. Hún endaði engu síður í 12. sæti í íslandsmótinu. Freyja og Karen náðu ekki að klára síðustu umferðina sökum meiðsla en Karen #202 endaði overall í 14. sæti og Freyja #999 í 15.sæti
Í 85 flokki kvenna kepptu Hondastelpurnar Halla Berglind, Una og Bergrún en þær skipa liðið Team Foxy ásamt Andreu #604. Una #718 lenti í 4.sæti, Halla Berglind í 6. sæti og í 7. sæti lenti Bergrún Lind Jónasdóttir #719 sem keppti í fyrsta sinn með Team Foxy í Sólbrekku. Allt eru þetta stelpur sem eru nýbyrjaðar að hjóla o standa sig rosavel!
Þetta var í fyrsta sinn sem Honda mætir með kvennalið á íslandsmótið í motocrossi, sumarið hjá okkur var mjög skemmtilegt og góð stemmning í Hondahópnum. Við hvetjum allar Hondastelpur til að hjóla á fullu og mæta á ráslínu næsta sumar!! Þetta er BARA gaman!!
Áfram HONDA stelpur!!
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
1
09
2007
Nú hefur verið opnuð ný heimasíða Honda bifreiða, hjóla og véla á Íslandi! Það er óhætt að fullyrða að þetta er glæsilegasta hjólaheimasíða landsins. Endilega skoðið síðuna www.honda.is
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
31
01
2007
| 22 September, 2007 8:00 | to | 23 September, 2007 17:00 |
Motocross of Nations, haldið í Maryland í Bandaríkjunum. Ísland sendir landslið til keppni í fyrsta skipti.
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : dagatal
Nýjustu athugasemdirnar