Tilkynning frá MSÍ

16 01 2008

Nú er nýtt starfsár að hefjast í sportinu hjá okkur samkvæmt útgefinni mótaskrá MSÍ fyrir 2008. Árið mun hefjast á Mývatni þar sem fram fer Íscrosskeppni sem er partur af Íslandsmótaröð í Íscrossi.

Það hefur verið ákveðið að skráning í keppnir héðan í frá mun alltaf ljúka á miðnætti mánudags fyrir hverja keppni og ekki mun verða hægt að skrá sig til keppni eftir það. Skráningin er opin í það minnsta í 2 vikur fyrir keppnina þannig að um nægan tíma er að ræða til að skrá sig.

Ástæðan fyrir þessari breytingu er einfaldlega til að létta á störfum starsmanna keppnanna sem hingað til hafa þurft að setja mótin upp á mótstað rétt fyrir keppni vegna óreglu í skráningum.

Þetta viljum við koma í veg fyrir og koma vel udirbúnir til keppni og geta keyrt mótin hnökralaust.

Þess vegna vonum við að keppendur líti á þessa breytingu jákvæðum augum og skrái sig tímanlega
hverju sinni, það þjónar engum tilgangi að bíða fram á síðasta klukkutímann eins og við höfum reynslu fyrir.

Keppandi þarf að vera félagi í aðildarfélagi MSÍ og það er í verkahring aðildarfélagisn að uppfæra félagatal sitt í Felix. Ef það er ekki gert þá er ekki mögulegt að skrá sig í gegnum kerfi MSÍ.

Hér er listi yfir tengiliði aðildarafélaga MSÍ

með fyrirfram þökk um góð viðbrögð

Guðmundur Hannesson

Formaður MSÍ
S: 864-4732



Æfingar Team Honda

11 01 2008

Þessar myndir voru teknar á æfingu Team Honda í Ármanns-Þróttarheimilinu á fimmtudagskvöldið. Æfingar hafa staðið yfir tvisvar í viku í vetur og hefur mæting verið góð en Berglind Óla þjálfari fer fyrir hópnum til að sjá til þess að koma öllum í form fyrir næsta tímabil. Ýmis tilþrif hafa verið sýnd á þessum æfingum og má þar á meðal nefna að Binni Morgan er orðinn meistari trampólínsins þar sem hann hefur náð þeim einstaka árangri að taka back-flipp með skrúfu án atrennu :O)

honda-aefing04.jpg

Eins og sjá má er þetta flottur hópur og er Óli Gísla liðsstjóri þarna fremstur í flokki…..

honda-aefingar-002.jpg

Og þarna er Nikki í símanum að panta nýja Hondu…….



Fréttatilkynning-stofnun nýrra samtaka!

9 01 2008

Hópur áhugafólks um ferðamennsku og útivist á vélhjólum (tví- og fjórhjólum) hefur ákveðið að stofna félag sem hefur m.a. það að markmiði að auka þekkingu vélhjólafólks, sem og almennings, fjölmiðla og stjórnvalda, á notkun vélhjóla til ferðalaga og útivistar. Félagið mun miðla upplýsingum um akstursleiðir, standa fyrir ferðum og fræðslufundum.

Mikill uppgangur er í notkun vélhjóla til ferðamennsku og útivistar á öllu landinu. Notkunin er bundin við akstursleiðir á lág- sem hálendi, mest á sumrin og haustin, en harðfennisakstur á vetrum hefur aukist umtalsvert undanfarin ár. Aðstaða til aksturs vélhjóla á Íslandi er í flesta staði viðunandi og í sátt við samfélag og umhverfi.

Vélhjólafólk á Íslandi sem notar hjólin sín til ferðalaga og útivistar hefur ekki átt ötulan málsvara undanfarin ár og er áhugi á að breyta því. Markmiðum sínum hyggst félagið m.a. ná með því að ná til sem flestra þeirra sem ferðast á vélhjólum, hvort sem um ræðir létt eða þung hjól (tví- eða fjórhjóla), samvinnu við sveitarfélög og aðra þá sem geta stuðlað að því að þau náist.

Stofnfundur félagsins verður 15. janúar kl. 20:00 á Hótel Loftleiðum, Bíósalnum. Allt áhugafólk um ferðalög og útivist á vélhjólum velkomið. Dagskrá fundarins má sjá á www.slodavinir.org.

image002.jpg



Íscross

6 12 2007
12 January, 2008 10:00to13 January, 2008 17:00

Mývatn
1. umferð