12
02
2008
Þessar myndir voru teknar þegar Gylfi Freyr sótti nýja CRF-450R 2008 hjólið sitt í Bernhard. Það er greinilegt að það er búið að setja bling-standardinn fyrir næsta keppnistímabil því hjólið er rosalegt! Gylfi mun keppa fyrir Bernhard / Team Honda í sumar og mætir til leiks í fantaformi, en Honda liðið hefur æft stíft í vetur undir handleiðslu Óla liðsstjóra og Berglindar þjálfara. Við Óskum Gylfa góðs gengis í sumar.

Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
12
02
2008
Bjarki #670 skrifaði á dögunum undir þriggja ára samning við Bernhard / Team Honda. Bjarki er feiknarlega góður ökumaður og mun keppa
í unglingaflokknum í sumar á Honda CRF-250R 2008. Á síðasta ári ók hann á CRF-150RB og á því náði hann öðru sæti í íslandsmótinu sem er frábær árangur. Bjarki hefur einnig verið vel liðtækur í vélsleðaakstri en hann keppir í vetur á Polaris. Fjölskylda Bjarka styður einhuga við bakið á honum og er óþreytandi að fylgja honum um landið þvert og endilangt á mót eða æfingar, en þau búa eins og margir vita á Akureyri. Við óskum Bjarka til hamingju með samninginn og verður gaman að fylgjast með honum í sumar.

Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
Nýjustu athugasemdirnar