Hondagóður Hittingur

27 05 2008

Hittingur í Sólbrekkubraut Miðvikudag 28.05.08 verðum þar Frá kl: 19.00.-

Tökum fullt af start æfingum. Og tvö til þrjú moto. þ.e 20 mín + 2 hringir. Nú kemur það í ljós hvort þrekið er í lagi.

Liðstjórar THR. 



Hjörtur “Líklegur” sendi okkur þessar samantektir.

26 05 2008

Mótorhjólaiðnaður 2007.
    Árið 2005 og 2006 tók ég saman gróflega tölur um notkun og gjöld sem mótorhjólafólk greiðir í ríkissjóð. Sem fyrr er skjalinu skipt í sex flokka: 1: Torfærumótorhjólaflokk,  2: götuhjólaflokk,   3: mótorhjólakeppnisflokk,  4: mótorhjóla-ferðamannaflokk, 5: nýinnflutt hjól 2007, 6: fjórhjól.    Til er greiningarflokkur hjá Hagstofu Íslands sem heitir: Vélhjólasala-Viðgerðirvélhjóla og Varahlutasala , það sem virðist vanta inn í þessa útreikninga hjá Hagstofunni við fyrstu sýn eru þeir liðir í rekstri mótorhjóla sem mest er skattlagður sem eru  bensín,  mótorhjóladekk sem er stór liður í rekstri mótorhjóla (að meðaltali endist afturdekk undir torfæruhjólum á bilinu 800-1400 km. og á götuhjólum 4000-6000km), hlífðarfatnaður er mjög hátt skattlagður og er nú bundið í lög að klæðast hlífðarfatnaði í almennri umferð.
   Af hverjum seldum bensínlíter sem kostar um 150 krónur fær ríkið 78 krónur nú í maí 2008.  Það er því ljóst að ef teknir eru 10 lítrar af bensíni sem notaðir eru á hjólið í venjulega æfingu eða rúnt fær ríkið af því 780 krónur.
Þegar ég tók saman tölurnar frá 2007 gekk ég út frá því að meðalverð á bensíni árið 2007 hafi verið 130 krónur á 95 oktan bensíni (sem er sennilega í hærri kantinum því það var ekki fyrr en í lok árs þegar bensínverð rauk upp, en á móti þessu  og reiknaði út frá því að margir nota 98 bensín eða V-pover sem kosta töluvert meira). Af 130 kr bensínverði fær ríkið rétt rúmar 74 krónur (32,95 í vegaskatt, 9,28 í bensíngjald og 31,85 í virðisaukaskatt).  Allir útreikningar voru hinsvegar gerðir út frá því að ríkið hafi fengið 78 krónur af hverjum bensínlíter sem er af núverði á bensínverði (4 krónur ofaukið) og er beðist velvirðingar á því sé það að trufla einhvern.

  1. Torfæruflokkur: Gífuleg fjölgun hefur verið í þessum flokki síðan á síðasta ári (hér eru ekki motocross-keppnismenn, en hjólin á rauðum númerum og því ekki leyfð á öðrum stöðum en í brautum og á einkalandi og þarf því að koma hjólunum á staðinn með bíl /kerru ). Iðkendur um 3000 (sem er sennilega full lítið því að í öllu landinu eru skráð á rauð númer 5550 hjól og er nokkur hluti þeirra fjórhjól, miðað við sölutölur mótorhjóla síðustu 3-4 ár þá má ætla að í landinu öllu séu óskráð torfærutæki um 1000), en meðalnotkun torfæruhjóla er um 3000 km. á ári. Og meðaleyðsla er um 7 lítrar á 100 km. Þetta gerir meðaltal 210 lítrar af bensíni og nota að meðaltali 2-3 afturdekk á ári og 1-2 framdekk, í varahluti og olíuvörur fer að jafnaði 30,000 hjá hverjum (tannhjól,keðja, bremsuklossar og fl.) . Viðhald á mótorhjólagalla á hverju ári 30,000.  Bensín á bílinn sem dregur hjólið á þann stað sem ekið er frá 200 lítrar á ári. Samtals í ríkissjóð (virðisaukaskattur,tollur og bensíngjald) 135,940,000.
  2. Götuhjólaflokkur: Um 6321 götuhjól eru til í landinu og ef reiknað er með því að meðalakstur götuhjóls árlega sé 3000 km og eyðslan sé 7 lítrar á hverja 100km ekna. Viðhaldskostnaður sé 40.000 í olíu, bóni, dekk og fl. en galla og aukahlutakaup sé um 30,000. Samtals fyrir notkun í ríkiskassann (tollur,bensíngjald og virðisaukaskattur) 190,537980.

Mótorhjólakeppnisflokkur: Þessi flokkur er reiknaður þannig að haldnar eru 10 aðal keppnir, keppandafjöldi er jafnaður út með því að hafa meðaltal 110 keppendur (tæpir 400 keppendur á Klaustri eru settir á 110 og umfram það er bætt ofan á þær keppnir sem eru á milli 70 og 120). Í hverja keppni eru notaðir 10 l. af bensíni, en til að geta keppt þarf keppandinn að æfa sig mikið og notar á hjólið 90 lítra til viðbótar og jafnast þá að keppnirnar eru 10X100l, en til að komast á æfingar og keppnir þarf að draga hjólið á báða staðina og notar bíllinn 200 l. að jafnaði á hverja keppni + æfingar. Þá lítur jafnan út svona sem reiknað er eftir 10X110X300X78=  25,740,000 . Keppnismenn fara að jafnaði með í galla og varahluti, líkamsræktarkort og annann kostnað við æfingar ásamt því

  1. að mjög margir fara í sérstakar æfingarbúðir erlendis og má gera ráð fyrir að hver keppnismaður fari með um 300,000 á ári í þessa liði. Samtals borga keppnismenn í mótorhjólakeppnum þá fyrir það eitt að keppa fyrir utan kaup á hjólinu (tollur,virðisaukaskattur og bensíngjald) 32,740,000. 

Allar tölur í þessum flokki eru að sögn þeirra sem stunda keppnissport  töluvert of lágar og mætti allt að því tvöfalda allar tölur. Samanber keppnina á Klaustri 2007 þá er áætlað að 400 keppendur hafi notað 6,000 lítra af bensíni í keppnina.

  1.  Ferðamannaflokkur: Árlega koma um 1000 mótorhjól til landsins sem ferðamenn og aka að jafnaði um 2500km á meðan þeir dvelja á landinu. Í skatt af bensíni borga þeir 13,650,000. miðað við 7l.  Einnig koma árlega um 10 erlendir keppnismenn og blaðamenn til að taka þátt í alþjóðlegu keppninni á Klaustri og fl. keppnum . Þessir menn þurfa gistingu og aðra þjónustu þó þeir fái oftast hjólin lánuð hjá Íslenskum umboðsmönnum. Gera má ráð fyrir að þetta geri um kr. 1,000,000 í ríkissjóð. Þessi flokkur er bara bensín og fréttamenn + keppnismenn vegna mótorhjólakeppna, en ekki er áætluð önnur skattlagning í þennann flokk og eflaust er hann stórlega vantalinn því reiknast á þennan flokk bara kr. 14,650,000.
  2. Nýinnflutt mótorhjól og fjórhjól 2006.: Alls voru flutt in 4,352 stykki og voru greidd í ríkissjóð af þessum mótorhjólum í vörugjöld kr. 1,746,485,000 (tollur) og af þessum sömu hjólum var greitt í virðisaukaskatt heldur hærri upphæð  2,095,782,000 miðað við meðalálagningu (fengnar voru tölur hjá þrem mótorhjólaumboðum og meðaltal tekið út frá því sem er 1,2) má þá margfalda vörugjöldin með 1,2 til að fá virðisaukaskatt af hjólunum. Þar sem að mótorhjólin voru 4,352 þurftu mótorhjólamenn jafn marga  mótorhjólagalla og ef gert er ráð fyrir að meðalverð mótorhjólagalla sé 100,000 og ríkið fær í tolla og virðisaukaskatt af hverjum galla a.m.k. 30,000, þá gerir þetta 4,352 gallar sinnum 30.000 =  130,560,000.  Opinber gjöld af 4,352 hjólum og göllum er samanlagt kr. 3,972,827,000.                                
  3. Fjórhjól: Fjórhjól voru skráð um 500 í landinu um áramótin 2005 og 2006, en gera má ráð fyrir að á milli 100 og 200 óskráð fjórhjól séu í landinu  þar sem ekki var farið að skrá þau strax í upphafi innflutnings.  Árið 2006 var gífuleg fjölgun af fjórhjólum, en alls voru flutt til landsins 782 fjórhjól + um 140 sexhjól það ár. Árið 2007 voru flutt inn um 1000 fjórhjól og nokkur sexhjól (ekki hefur tekist að fá endanlega tölu þegar þetta er ritað, en deilt var í heildarþunga innflutnings á fjórhjólum og gert ráð fyrir að hvert fjórhjól væri 411 kg.)  Ef hvert hjól notar um 150 lítra af bensíni á ári og reiknað sé út frá tölunni 2400 fjór og sexhjól og hvert hjól þurfi 30,000 í varahluti á ári eru eigendur þessara hjóla að skaffa í ríkissjóð í krónum  44,880,000.

Þessir 6 liðir gera því alls til ríkissins í krónum 4,391,574,980.
          P.S.  Ekki er hægt að hafa svokölluð sex-hjól inni í þessum tölum vegna þess að ýmis önnur tæki eru flutt inn á sama tollanúmeri.
Ef fjöldi hvers flokks er tekinn í innflutningi 2007, þá er skiptingin svona:
0-50cc             516       hjól.
50-250cc         794       hjól.
250-500cc       613       hjól.
500-800cc       458       hjól.
800cc +           971       hjól.
Fjórhjól um 1000       hjól.
Á öllu landinu eru skráð á hvít númer     6321  stór mótorhjól.
Skellinöðrur og vespur bláum númerum 1753 stykki.
Torfæru skráð fjórhjól og mótorhjól eru 5550 um síðustu áramót.
Samtals voru þá skráð                              13,624  um  áramót.

Ef lagðar eru saman tölurnar á samantekt minni síðustu þrem samantektum (2005-6 og 7) þá er samanlögð tala sem mótorhjólafólk hefur borgað í skatta í ríkissjóð átta og hálfur miljarður. Þá er bara að bera þá tölu við stóra framkvæmd á vegum ríkisins og segja: “ÞETTA ER GREITT AF MÓTORHJÓLAFÓLKI”.
Einnig er skuggalegt að þeir sem stunda motocross og enduro sem íþrótt hafi borgað á þrem árum 59 miljónir í skatt fyrir það eitt að vera íþróttamenn.
                                                    13. maí 2008  Hjörtur L. Jónsson.

 



Hondaferð á Krókinn

23 05 2008

Honda æfingarferð á Krókinn verður ekki farin að sinni.



Hondagóð ferð á Krókinn

22 05 2008

Nú eru síðustu forvöð að skrá sig í Króksferðina.

Klára þetta í dag takk fyrir.

Óli Gísla



Hondagóður Hittingur

22 05 2008

Hondagóður hittingur í Bolaöldu í kvöld Fimmtudag. Verðum þar uppúr kl 19:00.

Liðstjórar Team Honda.





Síður (4): [1] 2 3 4 »