Hondagóður dagur í Álfsnesi.

30 06 2008

JA, maður spyr sig.!!!!!!!!!!!!!!!!!

Binni Morgan #434 datt út vegna meiðsla, bakið í rusli.

Gísli Þór #377 datt út vegna meiðsla, rifbeinsbrotinn og illa tognaður á öxl.

Jón Bjarni #365 datt út vegna meiðsla, olnboginn bólginn og beyglaður, bak og háls blátt og marið.

Reynir #3 er frá vegna meiðsla, brotið bátsbein.

Gylfi Freyr #9 er frá vegna meiðsla, öxlin í döðlu.

Skúli Þór #680 er frá vegna meiðsla, brjósklos í baki.

Una Svava #718 er frá vegna meiðsla, handarbrot ekki næginlega vel gróið.

Það er varla að hægt sé að skrifa þetta allt án þess að fara að skæla. :(

En það var nú samt fullt af ljósum punktum í keppninni.

MX 85. Við eigum að sjálfsögðu fyrsta sætið þar, ásamt því að eiga þar marga mjög góða ökumenn

Eyþór #899 stóð sig frábærlega. Gummi Kort # 99, Friðgeir #16 og Einar #671 eru sömuleiðis gríðarlega öflugir ökumenn. En þess má geta að Gummi Kort klippti af sér gifs á hægri hendi til að geta verið með, þetta er sko “keppnis”.

Atli #669 ætlar sér auðsjáanlega að verða stjana MX1 flokksins fyrir Honda liðið.

Mikki #23 er hægt og sígandi að vinna sig upp, en þó var 3. motoið ekki í samræmi við væntingar.

Hjalli # 139 er kominn í það from sem hann þekkir og kann og lenti í 3. sæti í MX2. Flottur akstur hjá honum.

En Gísli þór #377 er farinn að verða mjög hraður ökumaður og gæti átt eftir að klóra í verðlaunasætin á einhverju móti sumarsins. Binni á að sjálfsögðu helling inni og á eftir að sýna það og sanna þegar bakið verður komið í lag.  

Mx unglingaBjarki # 670 kemur þar sterkur inn, “en það gæti verið gott fyrir hann að fara vel yfir bolta og skrúfur áður en hann fer af  stað,” hér erum við farnir að sýna okkar rétta andlit. Jón Bjarni# 365 er orðinn mjög öflugur, Hákon # 212 bætir sig með hverju móti, Björgvin # 391 hefur bætt sig gríðarlega frá Sólbrekku keppninni. Svo er það hann Eyþór #899, maður spyr sig bara ” er hann algjörlega þindarlaus” Hann kemur til með að rúlla þessum flokk upp á næsta ári, engin spurning.

MX 85 kvenna, þar var bara einn keppandi frá okkur,  Bergrún # 718, hún er ekki búin að jafna sig að fullu eftir stórt krass í Sólbrekkukeppninni. 

MX Kvenna, stelpurnar okkar þar eru á réttir leið og á ég von á því að þær bíti vel frá sér þegar líður á tímabilið enda eru þær að æfa gríðarlega vel. 

Stigasæti keppanda THR verða birt á morgun Þriðjudag.

Óli Gísla THR.

 

 



Hondagóður Keppnisdagur á Morgun

27 06 2008

Honda Logo

Já það verður Hondagóður dagur í Álfsnesi á morgun Laugardag.

Það verður Hondagaman saman.

Sól í heiði, sól í hjarta. Nú þurfum við ekkert að kvarta.

Brautin verður frábær, það er búið að tæta hana upp og niður. Reynir hefur gert mjög skemmtilegar breytingar á brautinni sem gerir ekkert nema að gera hana betri. Veðurspáin er góð, jafnvel bara frábær. Og svo á að vökva brautina ef þurfa þykir. Vá! hvað þetta verður gaman fyrir alla.

Nú er bara að taka með sér góða skapið, sólskinsbrosið og sennilega er líka þörf á sólarvörn.

” Ha erum við ekki að tala um keppni í Álfsnesbraut? “

Og svo Hondagóðir keppendur!!!! Mæta tímalega svo að það sé hægt að gera ráð fyrir öllum og öllu í pittsvæðinu hjá okkur.

Liðstjórar THR.



Nú klikkaði fréttaritari Hondagóða liðsins

26 06 2008

bjarki 

Já ég klikkaði algjörlega á því að fylgjast með Enduro kappanum okkar.

Hann Bjarki # 670 rúllaði upp B flokknum í Enduro keppninni á Akureyri. Drengurinn stóð sig með eindæmum vel og athugið! hann er bara 15 ára. Auðséð að snjósleðadæmið í vetur hefur skilað sér vel í úthaldinu hjá honum. Þetta er frábær árangur og við hjá THR erum að rifna úr stolti.

Til hamingju Bjarki og Co. Vonandi er þetta bara byrjunin hjá þér í sumar.

Team Honda Racing

Óli Gísla



Hondagóður hittingur.

25 06 2008

Hondagóður hópur!!!!!!!!!!!!!!Við ætlum að hittast eftir keppnina á Laugardag.  Skoðið emilið hjá ykkur fyrir nánari uppl. Eða hafið samband við Óla Gísla.

 

Einhverjir ætla sér að fara í Sólbrekku í kvöld, brautin á að vera nýlöguð þannig að það gæti verið gaman saman þar í kvöld. Verðum þar um kl 19:00 í kvöld.

Liðstjórar THR.



Enn einn Man Down í Hondagóða liðinu.

24 06 2008

Gylfi

Hann Gylfi Freyr #9 mun ekki taka þátt í Álfsneskeppninni vegna meiðsla. Hann fór illa á hausinn í Sólbrekkukeppninni og snéri uppá öxlina sem hann er ný kominn úr aðgerð með. Kappinn er að heimsækja sjúkraþjálfara þessa dagana og vonast til þess að geta komið öflugur inn á ný seinnipart sumars.

Við hjá THR erum að sjálfsögðu mjög svekkt enda töldum við Gylfa eiga mjög góðann séns á að koma MX1 titlinum aftur í raðir Honda. En eins og sagt er” það sem ekki drepur mann styrkir mann” og við vitum það að Gylfi kemur helillur til baka, þegar hann hefur styrk til, og þá skulu aðrir víkja :)

Baráttukveðjur frá THR.





Síður (6): [1] 2 3 4 » ... Síðasta »