Keppni um helgina á Akureyri

31 07 2008

Eru ekki allir klárir fyrir helgina????

Eru ekki allir búnir að kaupa sér sólarvörn ????

Eru ekki allir búnir að setja góða skapið í farangurinn ????

Eru ekki allir að fara til hafa gaman af þessu ????

Það ætlum við hjá Team Honda Racing a.m.k að gera.

Góða skemmtun um helgina og vonandi gengur vel hjá öllum.

GAMAN SAMAN.

Hondagóðar kveðjur

Óli Gísla THR.



Hondagóður Gummi Kort.

31 07 2008

Gummi Kort, Nikki og mæðgurnar fóru að landafjandast um landið. Markmiðið var að koma við í sem flestum brautum þannig að taka mætti framm hjólin til að tæta og trylla.

Eins og sést á meðfylgjandi myndum var all svakalega gaman hjá Gumma #99 hann skrubbar eins ekkert sé. Flottur strákurinn.

G kortG kort



HONDAGÓÐUR AFMÆLISDRENGUR

29 07 2008

Gisli 

Hann Gísli Þór #377 á afmæli 30.07.

Drengurinn verður 19. ára.

Endilega að senda kveðjur á hann.

Síminn hjá honum er 848-0753

Til hamingju með daginn frá öllum í Team Honda Racing.



Hittingur í dag þriðjudag.

29 07 2008

Hittast í dag í Álfsnesi kl 19:00.

Bolalda er lokuð vegna viðhalds.

THR

Óli



Hondagóð Helgi

27 07 2008

Þessi helgi er búin að vera fanta góð fyrir Hondagóða liðið. Þar sem liðið er mjög fyrirferða mikið þá þurfti að dreifa því víða um landið.

Liðið tryllti og tætti í eftirfarandi brautum: Bolaöldu, Þórlákshöfn, Akrabraut, Álfsnesi, Sólbrekku, KKA brautinni, Sauðárkrók, Morgan track og fleirri góðum brautum. Það er eins gott að það séu  til næginlega margar brautir fyrir okkur.

Helgin hefur verið okkur góð og farið vel með liði, engin alvarleg meiðsli þó að ein og ein bylta fylgi alltaf með í pakkanum. Varla er hægt að biðja um betra veður, en þó var lognið aðeins að flýta sér hér sunnan megin á landinu, óþarfi að kvarta undan svoleiðis smámunum.

Sáum í fyrsta sinn vökvunarkerfið í Bolaöldu sl. föstudagskvöld. Flott kerfi þarna í gangi og á eftir að nýtast vel í framtíðinni.  Krafturinn á því fór eitthvað í veðurguðinn sem varð að hella úr skálum sínum til að sýna sig og sanna. :)

Þökkum fyrir góða skemmtun um helgina, vonandi gengur öllum allt í haginn við undirbúning og æfingar fyrir næstkomandi helgi.

Team Honda Racing.

Óli Gísla





Síður (4): [1] 2 3 4 »