KEPPNI FRESTAÐ
29 08 2008ÁRÍÐANDI TILKYNNING FRÁ VÍK
Flokkar : Fréttir
ÁRÍÐANDI TILKYNNING FRÁ VÍK
Þegar þetta er skrifað er ekki enn komið á hreint hvort keppnin verður á laugardag eða sunnudag. Hvort sem verður þá hvet ég fólk til þess að klæða sig samkvæmt íslenskri veðráttu. Eins og allir Hondugóðir íslendingar vita þá er aldrei vont veður hér á klakanum einungis spurning um að klæða sig samkvæmt veðri.
Ég vill hvetja alla í liðinu, slasaða sem keppnishæfa, að mæta tímalega í keppnina. Við ætlum að reyna að ná mynd af öllum hópnum saman, þá er ég líka að tala um aðstoðarmenn og konur.
Núna er síðasti séns hjá mér að tauta svolítið í ykkur
Eru ekki allir tilbúnir í keppnina?
Eru ekki allir með útbúnaðinn á hreinu?
Eru ekki allir með hjólin í lagi?
Eru ekki allir klárir með þáttökuyfirlýsinguna?
http://msisport.is/content/files/public/reglur/%C3%BEattokuyfirlysing.pdf
Ætla ekki allir að hafa gaman af þessu?
Ætla ekki allir að skemmta sér og öðrum allann daginn?
Ætla ekki allir að taka með sér Hondagóða skapið?
Það er of seint að spá í þetta á keppnisdegi. Þannig að, Hondagott lið, farið yfir þessar athugasemdir og komið tilbúin með allt á keppnisdegi.
Team Honda Racing
Óli Gísla
Já enn og aftur hrinja menn út hjá okkur.
Hann Skúli #680 ætlaði sér að taka þátt í Bolaöldu keppninni, sinni 1. keppni á árinu. Hann byrjaði tímabilið á brjósklosi í baki og hefur verið frá í allt sumar vegna þess. Hann ætlaði sér að koma helillur og þræl massaður í síðustu keppni sumars. En venju samkvæmt, hjá okkur núna í sumar, þá krassaði hann það illa í Bolaöldu í gær að hann getur ekki tekið þátt. Þetta eru skilaboðin frá piltinum:
Ég spyr “”" ER ÞETTA EKKI KOMIÐ MIKIÐ MEIRA EN MIKIÐ “” spyr sá sem ekki veit.
Það verður ekki mikil fyriferð í Honda tjaldinu af keppnismönnum Honda í MX1 og MX2 liðunum.
Það eru bara 3 eftir Atli #669 í MX1 Binni #434 og Gísli #377 í MX2.
Batakveðjur til strákanna. “ÞAÐ SEM EKKI DREPUR MANN STYRKIR MANN” ( Vonandi )
Team Honda Racing
Óli Gísla

Smá pælingar svona í lokin á tímabilinu.
Hvar stöndum við og hvað möguleika eigum við!!!
MX 85
Þennann flokk eigum við, bara spurning um hvort það verði Gummi Kort #99 Eða Friðgeir #16 sem hreppa titilinn hér.
MX 125
Hér ætlar hann Bjarki # 670 að bretta upp ermar og klára þetta með stæl, hann þarf reyndar að standa sig vel og klára í eftsu sætunum til að ná 3. sæti. í dag er hann í 4. sæti til Íslandsmeistara, einungis örfáum stigum frá næsta manni. ég veit að drengurinn getur þetta, og í þetta sinn ætlar hann sér ekki að taka jarðvegsýni af brautinni.
MX 85 kvenna
Í þessum flokki eigum við ekki möguleika á titli, stelpurnar okkar hafa verið óheppnar í sumra þar sem þær byrjuðu báðar á því í Sólbrekkukeppninni að slasa sig og hafa verið að glíma við meiðslin eftir það í allt sumar.
MX Kvenna.
Ekki er titil von hér. En samt hafa skvísurnar okkar verið að standa sig ljómandi vel í sumar og verið að bæta sig í hverju móti. Karen #202 hefur ekki verið keppnishæf frá því í Júní vegna meiðsla á öxl. Reyndar voru þau meiðsli það alvarleg að hún var í aðgerð í síðustu viku og verður frá fram á vetur.
MX 1.
Það verður að segjast eins og er að mér er gráti næst að skrifa um þennan flokk. Gylfi #9 meiddist í Sólbrekku keppninni og hefur verið frá síðan, Mikki meiddist í Sauðárkróks keppninni og keppir ekki í Bolaöldu. ljósi punkturin hér hefur verið hann Atli #669. Drengurinn hefur staðið sig frábærlega í sumar og verið að berjast um efstu sætin. En þó eigum við ekki titilvon hér.
MX2
Hér hefur okkur gengið upp og niður. Eftir Sauðárkróks keppnina vorum við með Hjalla #139 öruggann í 2. sæti og Binna #434 2. stigum frá 3. sæti. Allt galopið í þessum flokki en þó ekki von á 1. sæti þar sem Gulli #111 er með það nokkuð öruggt. Svo er það áfallið, Hjalli #139 getur ekki keppt vegna meiðsla sem hann hlaut í slæmri byltu á Sauðárkróki, þannig að nú Verður Binni #434 virkilega að, bíta í Honda-Fly-Bernhard TUGGUNA, klára mótið með stæl og tryggja okkur 2. sætið.
Þó að við höfum ekki náð því takmarki að vera með okkar keppnisfólk á palli í öllum keppnum þá hefur það sem búið er verið frábært, virkilega góður andi í hópnum og allir verið mjög samhentir í öllu sem gert hefur verið, einnig hefur það sýnt sig að undirbúningur okkar í vetur, þ.e fimleikaæfingarnar, hafa hjálpað okkur mjög mikið.
Við höfum verið töluvert óheppin með meiðsli í hópnum, alvarlegustu meiðslin það sem af er sumri hlaut hann Eyþór #899 þegar hann lærbrotnaði í keppninni á Akureyri. Svo eru þeir sem hafa dottið út í keppnum vegna meiðsla:Binni #434 meiddist fyrir Álfsneskeppnina og gat ekki lokið keppni þess vegna. Gísli #377 datt út í Álfsensi eftir slæma byltu. Hjalli #139 datt út á Sauðárkróki eftir slæma byltu. Reynir #3 datt út vegna handarbrots fyrir 1. keppni en er að koma inn aftur. Skúli #680 hefur verið frá í allt sumar vegna brjóskloss í baki. Karen #202 er frá vegna axlarmeiðsla. Bergrún #719 hefur verið mikið frá vegna meiðsla sem hlaut í slæmri byltu í Sólbrekku keppninni. Gumma Kort #99 hefur tekist að brjóta sig á ýmsum stöðum við að gera allt annað en að hjóla ( förum ekki nánar út í það hér ). Gylfi #9 datt út í Sólbrekku keppninni og hefur verið frá síðan. Mikki #23 handarbrotnaði í Sauðárkróks keppninni og verður ekki með í Bolaöldu. Jón Bjarni #365 datt út í Álfsnes keppninni eftir mikið samstuð í fyrstu beygju eftir startið. Una María datt út í Sólbrekku keppninni eftir slæma byltu. Og svo í restina þá lagði ælupest hann Hákon #212 fyrir Sauðárkróks keppnina.
Þetta er rosaleg upptalning og við hljótum að vera búin með meiðsla og veikinda kvótann okkar fyrir næstu þrjú keppnistímabil ( Vonandi ).
Svo er bara að koma með Hondagott bros á vör í Bolaöldu keppnina, amk, að brosa í gegnum tárin því að þrátt fyrir allt þá er þetta sport svo svakalega skemmtilegt.
Fyrir hönda THR
Óli Gísla
Mynd frá MX Bolaöldu 2007
Nú er það síðasta MX keppni sumarsins. Skráningu lýkur kl 23:50. í dag MUNA AÐ SKRÁ SIG fyrir þann tíma annars tvöfaldast gjaldið Nú er bara að leggja allt í sölurnar og sýna hvað er til í pokahorninu. Nú má fórna öllu fyrir góðann árangur. Það er verið að steypa startið í Bolaöldu þannig að ég mæli með því að þið æfið ykkur í að starta á föstu undirlagi.
Samkvæmt langtíma veðurspá þá verður þetta væntanlega drullukeppni, amk þá spáir rigningu þannig að allir út að hjóla þó að það sé blautt þessa dagana, það gerir ykkur bara betur undirbúin fyrir keppnina á Laugardag.
? Hvort að það verði drullu gaman saman eða bara gaman saman í góðu veðri.
Hjóla fjör hjá Hondagóða liðinu.
Liðstjórar Team Honda Racing.
Nýjustu athugasemdirnar