HONDAGÓÐUR AFMÆLISDRENGUR

31 10 2008

ebj

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Einar, hann á afmæli í dag.

VEIT EKKI HVORT AÐ ÞIÐ ÞEKKIÐ ÞENNAN MANN, EN SVONA LEIT HANN ÚT ÞEGAR HANN VAR UNGUR OG MEÐ HÁR.

Í DAG MÁNUDAG HEFUR HONUM TEKIST AÐ BÆTA VIÐ SIG ÁRI, EKKI VÍST AÐ ÞAU  VERÐI MIKIÐ FLEYRI ÞAR SEM HANN ER ORÐINN SVO HÁALDARAÐUR.

HVAÐ SEM ÞVÍ LÍÐUR ÞÁ VERÐUR HANN 65 ÁRA MÍNUS 252 MÁNAÐA OG REIKNIÐI SVO.

Í TILEFNI AF ALDRI HEFUR HANN LÁTIÐ AF STÖRFUM HJÁ BERNHARD OG MUN EYÐA ELLIÁRUNUM Í BLÁFJÖLLUM AÐ RENNA SÉR Á SLEÐA.

Einar Bjarnason!!! Við hjá Team Honda Racing óskum þér til hamingju með afmælið.

Einnig vonumst við til þess að allir verði duglegir að hrúga á hann ellikveðjum.

Senda kveðju á hann í einar@skidasvaedi.is  eða í síma: 898-6021

Team Honda Racing.

ebj

Eins og þið sjáið á þessari mynd þá var hann algjör “hönk” með 6 pack í geymslu und alles.



Hondagaman saman á morgun Laugardag 01.11.2008

31 10 2008

Hetjurnar í Mosó eru búnir að vera að vinna í brautinni þar.

Sjá tilk. Hér.

Og hvað haldið þið, Brautin verður opin á morgun og það spáir fínu veðri.

Það held ég að það verði gaman saman þar á morgun. Fínt að taka trylling í brautinni, gera sig gjörsamlega úrvinda af þreytu. þá verður ekki eins dýrt á barnum um hvöldið þar sem ekki þarf eins mikið magn af gleðiveigum. hehe.

Svo er það hin glæsilega árshátið Vík um kvöldið. Þar ætti að vera gaman saman líka, enda samankomið allt skemmtilega fólkið úr bransanum. ( Skilst að það séu engar kompur eða skápar sem hægt sé að kítast í :) , nei segi bara svona. )

Það ætti aldeilis ekki að þurfa vera leiðinlegt hjá okkur á morgun Laugardag.

Sjáumst hress og kát.

Óli Gísla

Team Honda Racing.



Team Honda Racing Æfingar

29 10 2008

 thr

Sæl verið þið öll í Hondagóða hópnum.
Nú er æfingatíminn hjá okkur kominn á hreint.
Fyrsta æfingin hjá okkur verður þann 04.11.2008
Æfingastaður er eins og áður: Ármannsheimilið í Laugardal.
Fyrir þá sem ekki vita hvar það er. Það er í sama húsi og Þróttur. Inngangur frá gervigrasvellinum.
Æfingadagar eru eftirfarandi:
Þriðjudögum    Kl: 20:30 til 22:30
Fimmtudögum Kl: 20:30 til 22:30
Kostnaður er Kr: 3.000.- á mánuði og þarf að borga hvern mánuð fyrirfram.   
Það þarf að taka með sér pening. Ekki hægt að borga með korti.
Útihlaup eru háð veðri og mun ég láta ykkur vita með dags fyrirvara hvort að það verði.
Ef við hlaupum úti þá er mæting kl: 20:00.
 
 

Nú verður Hondagamaman saman hjá okkur í Hondagóðum hóp.
Honda Fly Kallinn
Óli Gísla
Team Honda Racing

 



TEAM HONDA RACING VETRAR ÆFINGAR!!!!!!!!!!!

27 10 2008

thr 

Nú fara að hefjast vetraræfingar THR.

Við getum bætt við okkur nokkrum frábærum persónum til að æfa með okkru í vetur.

Æft verður tvisvar í viku undir leiðsögn fimleikaþjálfara hjá fimleikadeild Ármanns.

Gerðar eru æfingar sem hafa verið sérstaklega útfærðar með það í hyggju að styrkja allan líkamann, auka þol og liðleika. Útihlaup eru þegar veðrið býður uppá það. Einnig býðst þér að taka þátt í því sem við tökum okkur fyrir hendur í vetur. Þ.e hjólaferðir ofl.

Skilyrðin fyrir því að þú getir æft með okkur eru:

1. Þú verður að eiga Hondu.

2.  þú verður að vera tilbúin að taka þátt í þessu í allan vetur.

3.  Þú mátt alls ekki hlæja að verðinu á þessu þó að þetta kosti bara Kr: 3.000. á mánuði. 

Þeir sem tóku þátt í þessu með okkur s.l vetur geta vart beðið eftir að æfingarnar hefjist aftur, enda skiluðu þær gríðarlegum árangri fyrir alla. Í hópnum er fólk á öllum aldri og allt gríðarlega skemmtilegt fólk.

Það sem öllum hefur þó þótt skemmtilegast eru verðlaunin eftir hvern tíma………. Trampolin, vei gaman saman..

Ef þú hefur áhuga hafðu þá samband.

Óli Gísla

Team Honda Racing

olafur@bernhard.is  eða í síma 864-1243



Hér fáum við góð ráð í því að taka demparana úr hjólinu.

27 10 2008

TWM

Removing the Shock from a Honda CRF

Strákarnir hjá TWM eru duglegir að ráðleggja okkur. Sjá ráðleggingar Hér.

 

Óli Gísla

Honda Racing / Bernhard.





Síður (6): [1] 2 3 4 » ... Síðasta »