HONDA MÓTORHJÓL
29 11 2008Okkur voru að berast þau leiðinlegu tíðindi að sú sending af hjólum, sem átti að koma hér til landsins fyrir áramót, mun ekki koma. Bernhard hefur afpantað öll hjól af 2009 árgerð.
Hvað þýðir þetta fyrir sportið okkar?
Jú að svo komnu máli verða engin ný 2009 CRF 250 EÐA CRF 450 boðin til sölu hjá Bernhard / Honda, í bili
Hvað veldur? Jú það eru gengismálin. 2008 hjólin voru flutt inn í Japönskum jenum á genginu ca 0,65. Jenið í dag er ca 1,50.
Þetta myndi þýða að ef 2009 hjólin væru boðin til sölu þá væru verðin gjörsamlega út úr öllu velsæmi, ég vill ekki einu sinni reyna að giska á verðin.
Ég er hér að þurka tárin á meðan ég skrifa þessa frétt. Enda er spenningurinn fyrir nýja 450 hjólinu alveg gríðarlegur.
En við horfum fram í tímann með von um betra gengi, bjartari tíma og 2009 línan komi inn til landsins fyrir sumarið.
Nú ef allt klikkar, þá er bara yfirfara gömlu tugguna og gera hana keppnisklára fyrir næsta sumar. Og halda síðan áfram að hafa gaman af sportinu þó að hjólið sé ekki splunku nýtt.
Með von í hjarta um betri tíð með sól í haga
Óli Gísla.
Team Honda Racing.
Flokkar : Fréttir








Nýjustu athugasemdirnar