Helgin frammundan, JEY JIBBí JEY.

27 02 2009

LANGIS

Langisandur 2008

Það stefnir allt í þessa fínu hjólahelgi.

Að minnsta kosti er spáin fyrir Laugardaginn mjög fín. Mér og Gísla #377 var boðið á æfingu á Langasandi og ætlum við okkur að þiggja það boð með þökkum. Það er alltaf gaman að tæta og trylla á sandinum.

Svona í leiðinni þá er meiningin að testa Dunlop dekkin, ég fékk eitt sett af D752 í gær til prufu og var fljótur að smella því undir 250f hjólið hjá mér. Verður gaman að sjá hvernig dekkin koma út í hörðum og lausum sandi. Dunlop er að koma með nýja gerð af dekkjum sem verða væntanlega til sölu hér á klakanum með vorinu, það verður gaman að prufa og finna hvort að það sé mikill munur.

Gef út eftir helgi hvernig okkur líkar við DUNLOP togleðurshringina. 

dunlop

Loksins passa dekkin við merkingarnar á hjólinu mínu. :)

Heyrst hefur af nokkrum Hondagóðum hjólurum sem hafa tekið stefnuna á Eyjar um helgina og verður án efa mikið stuð hjá þeim. Þetta munu vera Eyþór #899, Jón Bjarni #365, Friðgeir #16, Guðni og Reynir ástamt gríðarlega fallegu fylgdarliði. Sjálfsagt verða einhverjir aðrir á ferð þarna líka.

VIÐ EIGUM HONDAGÓÐANN FULLTRÚA Í UNGFRÚ REYKJAVÍK!!!!!!!!!!!

 berglind

En núna í kvöld, Föstudag, er hún Berglind þjálfari að keppa í Ungfrú Reykjavík. Ég ætla að biðja ykkur öll um að fara á netið og kjósa hana þar í netkosningu, og að sjálfsögðu að senda fyrir hana sms í kosningunni í kvöld. Keppnin er í beinni útsendingu á Skjá 1. í kvöld og hefst kl 22:00

Númerið hennar í SMS kosningu er 900-3005  og fyrir netkosninguna er tengill HÉR  Berglind Þóra Ólafsdóttir 900-3005

 

Vonandi skemmtið þið ykkur vel og hafið það gott um helgina.

Amk stefni ég og mitt fólk að því.

Óli Gísla

Honda Racing.

 



Testing the LoudmouthMX Intake

27 02 2009

tw

Trans World voru að testa fyrir okkur Loudmouth loftsíukerfið. Ef þetta er allt satt og rétt sem hefur komið fram í tveimur blöðum, sem ég hef lesið, þá virðist þessi græja virka. Svo er líka miklu þægilegara að koma þessu fyrir í hjólunum. Bara það gerir þetta þess virði að nota Loudmoth. 

Sjá testið HÉR.

 

 loud m

Ég held að ég sé sannfærður um ágæti þessarar græju

Óli Gísla

Honda Racing.



VETRARÆFINGAR HONDA RACING

25 02 2009

BREYTING!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

ÞVÍ MIÐUR!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

ÆFINGIN FELLUR NIÐUR ÞAR SEM VEÐURSPÁ GERIR RÁÐ FYRIR 15-20 ms. OG SNJÓKOMU.

Mæli með því að þið skellið ykkur í sund í staðinn. Synda 3 X 20 mín. Taka góða púlsæfingu á þetta.

Æfingin á morgun Fimmtudag 26.02.09 

Við verðum að gera breytingu á æfingunni vegna þess að það er keppni í Ármannsheimilinu.   

 

Í staðinn tökum við þrælgóða útiæfingu.

Hittumst fyrir utan Laugardalslaugina kl: 20:00, tökum gott skokk um Laugardalinn og tökum síðan vel á því í brekkuþreki.

Þetta er kærkomin tilbreyting fyrir okkur og svo er veðurspáin með alveg ágætum.

Ég hvet alla til að mæta á þessa æfingu og skella sér síðan í laugina eftir útiæfinguna. Ég ætlast til þess að allir taki 20 mín sund áður en farið er í pottinn. ATH  taka með sér pening fyrir sundinu

Gjaldskrá sundstaða ÍTR
Stakt gjald börn kr. 110
Stakt gjald fullorðnir kr. 360

Sjáumst hrikalega hress og kát á morgun.  Óli Gísla  

 

Honda Racing.

 

 



Einn af 10 bestu aukahlutunum á Dealer Expos 2009

24 02 2009

This wild one-piece seat from Acerbis is as original as it is cool. With no seat cover and a textured, rubberized feel, the X Seat is available now and comes in a variety of colors for the major models of off-road bikes. With no staples to come out, no seat cover to get holes in and no inner foam to get waterlogged, this sweet item could become very popular in the next few years.

Acebis

? hvort að þetta myndi duga fyrir sætisböðla eins og Gísla #377.

 

Óli Gísla

Honda Racing.



Vertaræfingar Honda Racing

23 02 2009
Minni alla á æfinguna í kvöld Mánudag.  

Útihlaup og erfið æfing á eftir. Næstkomandi Fimmtudag verður smá breyting á æfingunni þar sem það verður fimleikakeppni í salnum. Þó að við séum að sjálfsögðu orðin frábær í flestum þáttum fimleika fáum við ekki að vera með.   

Við látum ykkur vita í kvöld hvernig Fimmtudagsæfingin verður. Óli Gísla 

Honda Racing. 





Síður (6): [1] 2 3 4 » ... Síðasta »