STÓR HJÓLAHELGI FRAMUNDAN JEY JIBBY JEI!!!

30 04 2009

THR

Það er þriggja daga hjólahelgi framundan. Við feðgar verðum ásamt fullt af öðrum Hondagóðum í Mosóbraut þar sem Mikki Frisk verður með námskeið föstudag og laugardag.

Akkurat núna, þegar ég er að hamra þetta á lyklaborðið, þá er sólin farin að glenna sig. Vona að svo verði áfram um helgina. En eins og sagt er, enginn er verri þó hann vökni. :)

Bolaöldubrautin er búin að fara í gegnum heilmiklar breytingar undafarna daga. Garðar er búinn að vera með ýtuna á fullu um alla braut og er vonandi að þær breytingar komi vel út.  Brautin opna kl 12:00  á morgun föstudag.

Það er líka hægt að tæta og trylla í fleyrri brautum td Sólbrekkubraut og Þorlákshöfn. Allar eru þessar brautir mjög skemmtilegar jafnvel þó að veðrið gráti eithvað smá.

Verkalýðnum óskum við ( hjólalýðurinn ) til hamingju með daginn á morgun 1. Maí.

Sjáumst hress og kát með bros á vör og hjólahamingju í hjarta.

HjÓli Gísla

Team Honda Racing



HJÓLI STOLIÐ

29 04 2009

Hjólið er fundið. Og komið aftur til sölu hjá Bernhard Notuðum Bílum.  

Enn er verið að stela hjólum.

Sl nótt var brotist inn hjá Bernhard Notuðum Bílum að Eirhöfða.
Og enn er hjóli stolið.
Hjólið er HONDA CRF 450 SUPERMOTO. Skránigarnúmerið er: UT364
Hjólið ætti að vera mjög auðþekkjanlegt Þar sem stellið á því er polyhúðað svart.
Þetta er gamla hjólið hans Jóa Kef

Þeir sem vita um hjólið eru beðnir um að tilkynna það til lögreglunnar eða hringja í okkur hjá Bernhard Notuðum Bílum í S: 551-7171

crf Nú látum við þennan ræningjalýð ekki komast upp með þetta.

HjÓli Gísla Hond Racing.



Bjarki Sig #670

29 04 2009

Smá sleðafréttir af Bjarka #670!!!

Um síðustu helgi fór fram 3. og 4. umferð í snjócrossinu  þennann veturinn. Keppninn fór fram á Fjarðarheiði.

Ég reyndar fylgist ekki næginlega mikið með sleðaíþróttinni til að geta tjáð mig um það en aftur á móti get ég sagt það að drengurinn er að standa sig gríðarlega vel.

Að sjálfsögðu stóð drengurinn sig Hondavel og rúllaði keppinautunum upp. 1. sætið í báðum umferðunum. Það sem mér líst best á í þessu er að hann ætti að koma helillur og í toppformi fyrir sumarið.

Til hamingju með árangurinn, Bjarki, Frá öllum í Honda Racing

Bjarki #670

Hér flýgur hann um fjöllin blá.

Bjarki #670

Og að sjálfsögðu Hondu klæddur næst hjartanu. Myndum stolið frá Jonna.

 

HjÓli Gísla

Honda Racing.



Ashley Fiolek

28 04 2009

TW 

 

 Ashley Fiolek

 

Hér sýnir þessi frábæra stelpa okkur það að stelpur geta verið rosalega góðar í þessu sporti, og það jafn og eða betri en strákarnir. Og ath, hún er heyrnalaus en lætur það ekki aftra sér í neinu.

SJÁ VIDEÓ HÉR.

HjÓli Gísla

Honda Racing



Freecaster TV

28 04 2009

Nú er fyrir höndum nokkrir rigningardagar, þá er ekki eins gaman að hjóla, amk þá dugar maður ekki eins lengi í einu.

HVAÐ ER ÞÁ HÆGT AÐ GERA!!!!

Fyrir þá sem ekki eru byrjaðir í próflestri eða þá eru bara aðgerðarlausir eftir vinnu nú eða bara atvinnulausir í bili.

Hér er tengill inn á Freecaster TV þeir sýna frá GP keppnunum. Hér er ekkert kjaftæði  eða auglýsingar bara hardcore motocross.

KLIKKA HÉR.

HjÓli Gísla

Honda Racing.





Síður (5): [1] 2 3 4 » ... Síðasta »