MX Akureyri á Sunnudag.

29 05 2009

 hondarace

Nú er búið að hlaða öllu draslinu í GrænuHondaRacingOfurþrumuna og nú verður brunað í átt að Norðlensku ölpunum.

Góða skapið var sett með í töskurnar, búið að skúra skrúbba og bóna tuggurnar. Reyni að sætta mig við HEL….. skattahækkanirnar, en það verður aldrei. HVER KAUS ÞESSA RÍKISTJÓRN YFIR OKKUR EIGINLEGA. Nei segi bara svona!!! Enga pólitík hér takk fyrir.

Samkvæmt mínum bókum þá eru allir í Hondagóðaliðinu í 100% líkamlegu ástandi, það var ekki alveg sama staða í þeim málum hjá okkur í fyrra :(  . Við eru með hörkulið í ár og get ég ekki betur séð en að við eigum góða möguleika á frábærum árangri í öllum flokkum. Ekki tek ég neinn úr hópnum fram yfir aðra, en ég verð mjög hissa ef við náum ekki keppanda á pall í flestöllum flokkum. 

Sjáumst Hondahress og kát. 

HjÓli Gísla

Honda Racing 



Undirbúningur fyrir MX Akureyri

27 05 2009

hondarace 

Í kvöld veit ég ekkert hvert skal fara, á ég að fara í Bolaöldu eða kannski Mosóbraut nú eða kannski bara hanga heima. Ja maður veit bara ekkert í sinn haus núna. ( frekar en vanalega )

SVO er það stóri undirbúningsdagurinn á morgun. Þá verða hjólin standsett fyrir keppnina enda fara margir úr liðinu norður á föstudag. Ég er svo heppinn að hjólið hjá Gísla #57 stendur að mestu tilbúið í bílskúrnum. Eina sem þarf að gera er að færa demparana af mínu hjóli ( sem hann hefur verið á hrista sótið úr undanfarið ) yfir á hans hjól, festa tímamælisbrakketið á demparann og síðan bara að pússa létt yfir. Enda gripurinn komin á nýja Dunlop togleðurshringi framan og aftan. Nýupptekinn mótor, ný keðja og tannhjól, endurnýjaðir bremsuklossar, ný grip á stýrið. Ég ætla rétt að vona að þetta allt saman dugi til að hjólið sé í toppstandi fyrir keppnina. Svo má ekki gleyma því að hljóðkúturinn var pakkaður upp sl haust og ætti að standast hljóðmælinguna 96-8 db ( vonandi :) ).

Sjáumst hress og kát.

HjÓli Gísla

Honda Racing.

 

PS:

Keppendur 1. umferð MX Akureyri ATH !
Keppendur í Íslandsmótaröð MSÍ 2009 athugið að Moto-Cross reglur og dagskrá 2008 gilda fyrir komandi keppnistímabil. Það er þó rétt að benda keppendum á að MX-1 heitir nú MX Open í skráningarkerfinu. Einnig er kominn inn nýr flokkur “B 40+ flokkur” en hann var rangt skráður í skráningarkerfinu, þessi flokkur er fyrir 40 ára og eldri keppendur og verður keyrður með B flokk í sumar, til þess að flokkurinn sé virkur þarf að lágmarki 5 keppendur.   

Keppendum og aðstandendum þeirra er bent á að prenta út reglur og dagskrá sem er að finna undir “Reglur” hér á síðunni og hafa með sér á hverja keppni, það er á ábyrgð keppenda að vera tilbúnir á þeim tímum sem segir í dagskránni. Keppnisstjórn í hverju móti leytast til að halda dagskrá, aldrei er farið fram úr dagskrá en ófyrirséðar uppákomar geta valdið töfum.

Rétt er að minna keppendur á að mæta með keppnishjól rétt merkt sínu keppnisnúmeri með réttum litagrunni eins og reglur kveða á um. Einnig er rétt að árétta reglur um hámarks hávaða keppnishjóla sem er 98 dB, keppnishjól verða hávaðamæld í skoðun fyrir keppnir ársins 2009, þeir keppendur / keppnishjól sem eru ofan við hávaðamörk geta átt á hættu að fá ekki skoðun / rásleyfi.

Keppendur sem taka þátt í Íslandsmótaröðum MSÍ 2009 þurfa að vera félagar í einhverju af aðildarfélögum MSÍ og þurfa að hafa greitt félagsgjöld fyrir árið 2009 til þess að fá að keppa. Keppandi sem hefur ekki greitt félagsgjöld 2009 til síns aðildarfélags en sleppur í gegn um skoðun getur verið feldur út úr Íslandsmótaröð ef upp kemst.

Aðstoðarmenn keppanda eru á hans ábyrgð á keppnissvæðum, MUNIÐ að ganga vel um keppnissvæðin og hirða upp drasl og annað sem til fellur. Sýnið ávallt öllum starfsmönnum og öðrum keppendum kurteisi og komið fram eins og þið viljið að komið sé fram við ykkur.

Við erum öll að stefna sömu leið, höfum gaman af komandi sumri, njótið vel.

Stjórn MSÍ



WMA Preview Video: Ashley Fiolek at Full Speed

26 05 2009

tw

Sælir piltar!!!!! Væruð þið ekki tilbúnir í þennann hraða?

HÉR sjáið þið hvernig á að keyra mótókross á full speed.

Glæsilega keyrsla hjá þessari frábæru stúlku.

fiolek

HjÓli Gísla

Honda Racing



EKKI NEMA VIKA Í FYRSTA MX MÓT SUMARSINS

23 05 2009

hondarace 

Og þá fer maðu aðeins að HUXA.

Er allt á hreinu og allt tilbúið fyrir MX mót sumarsins 2009???

Hvað þarf að vera á hreinu???

Til að hafa allt á hreinu þá er gott að fara inná MSÍ síðuna, þar er allt sem á þarf að halda. Amk allt nema hvað þarf að gera í þjónustu fyrir hjólið.

Eitt sem er mjög mikilvægt að hafa á hreinu!!!!!!!!

Við skráningu í mót byrjar þú á því að haka við yfirlýsingu sem er hér fyrir neðan. Þetta er nauðsynlegt að lesa, skilja og hafa á hreinu.

“Ég, með því að senda þessa skráningu, afsala mér öllum rétti til að krefjast skaðabóta á hendur keppnishaldara, MSÍ eða öðrum styrktaraðilum atburðanna, vegna meiðsla eða veikinda sem ég gæti fengið í áðurnefndum atburðum. Ég staðfesti jafnframt að ég er bæði í nægilega góðu líkamlegu og andlegu ástandi til þess að keppa í mótinu. Ég lýsi því yfir að ég hef lesið reglur þær sem gilda um þessa keppni og samþykki að fara eftir þeim í öllu. Ég geri mér grein fyrir þeim hættum sem fylgir keppninni. Mér er ljóst að ökutæki sem taka þátt í aksturskeppni skulu vera skráð og ábyrgðartryggð sérstaklega vegna þeirrar áhættu sem í keppni felst. Staðfesti ég að slík trygging ásamt öðrum eru á ökutæki því sem ég mun nota í keppninni.”
 

Þáttökuyfirlýsingin endilega að prenta plaggið út og koma með það undiritað, það flýtir svo rosalega fyrir skráningunni og skoðun. Þetta er eitthvað sem allir vita um en enginn man eftir.

Flaggreglur er eitthvað sem allir keppendur eiga að vera með á hreinu, hvað er svart flagg, hvað er blátt flagg???? Lesið og lærið utanaf, það hjálpar öllum, líka þér.

Mótókrossreglur  Þetta hafa allir gott af að lesa yfir, amk tvisvar um hvert keppnistímabil.

Svo eru það merkingarnar á hjólunum, þ.e bakgrunnarnir. Nú er engin undanþága frá þessu.

Bakgrunnar sem á að notað til að aðgreina flokkana.
MX1  Hvítur bakgrunnur / svartir stafir
MX2 Svartur Bakgrunnur / hvítir stafir
MX unglingaflokkur svartur bakgrunnur / hvítir stafir
Opinn kvennaflokkur svartur bakgrunnur / hvítir stafir
85cc kvennaflokkur hvítur bakgrunnur / svartir stafir 
Keppandi sem ekki gætir þess að númer sjáist greinilega getur átt á hættu að falla úr keppni eða verða ekki talinn með.


HjÓli Gísla

Honda Racing.  

 

 

 

 

 

 



HONDAGÓÐIR Í AKRABRAUT 21.5.09

22 05 2009

Hondagóðir hópuðu sig saman og skelltu sér í Akrabraut í gær, fimmtudag. Þetta reyndist hinn besti æfingadagur fyrir okkur, enda veðrið frábært og brautin gjörsamlega geðveik til æfinga. Hún var röttuð í rusl og ágætlega rök, amk í röttunum, uppstökkin á pöllunum orðin vel tætt og með röttum og kikkerum í allar áttir. ÆÐISLEGA GEGGJAÐ!!!!!!!!!!!

Þeir sem mættu: Jón Bjarni “JB Cool”, Eyþór “Járnkarl”, Friðgeir “Mosókall”, Gummi kort “Kortarinn”, Gísli “Tjón”, Skúli “Testari”, Una Svava “I Love my seat”, Nikki “Grjót” + frú, Óli “Taut”, Bjöggi “Bátsbein”, Einar B-rjálaði, Reynir ”hinn grimmi þjálfari” og Bryndís “þreytta” afmælisbarn.

Við vorum gríðarlega ánægð með daginn enda er brautin frábær til að æfa sig fyrir Akureyrar keppnina. Ég náði meira að segja að rulsast í brautinni í einn og hálfann tank. Ég tel það ansi gott þar sem mér fannst brautin mjög krefjandi. Ruttarnir voru að há mér í upphafi en þegar leið á daginn var ég farinn að ná þeim ágætlega ( að mínu mati ) . Gríðarlega skemmtilegur og árangursríkur dagur hjá Hondagóðum.

Ég klikkaði á því að taka með myndavélina, en ég rottaði myndavél frá Bryndísi og skaut nokkrum. Ekki náðust allir í mynd enda rosalegur hraði á Hondagóðum þessa dagana.

Þökkum Skagafólki fyrir skemmtilega og krefjandi braut. Það verður spennandi að sjá svæðið þegar það verður allt komið í notkun.

3

Reynir ”Þjálfarinn Grimmi” Þið sjáið svipinn á honum.

Bjöggi

Bjöggi “Bátsbein” Hann braut á sér bátsbeinið á Mikka Frisk æfingunum um daginn. Ekki gaman svona korteri fyrir mót.

JB

JB “Cool”

JB

Hér sjáið þið af hverju hann er COOL. Með flöskuna í annari og eins og pabbi sinn í framan, þann daginn!!!

Kortarinn

G. Kort á flugi.

Eyþór

Eyþór “Járnkallinn” að sýna hvernig á að skera röttana.

Nikki

Nikki “Grjót” í stuði Hann var svo duglegaur að týna grjót í brautinni.

Friðgeir

Friðgeir “Mosókall” gjörsamlega með allt á útopnu inná beina kaflann í brautinni.

HjÓli Gísla

Honda Racing. 

 

 

 

 

 





Síður (4): [1] 2 3 4 »