Til hamingju með daginn allir Hondugóðir.
Í tilefni dagsins þá óskum við MótóMos til hamingju með daginn því klúbburinn á eins árs afmæli í dag.
Og eins og Hondugóðu fólki sæmir þá mættum við úr Hondagóðaliðinu á svæðið, fengum pylsur ( eða pulsur ) eins og hver og einn gat í sig látið. Einnig var frítt fyrir gesti í brautina og var allt fullt af fólki bæði í brautinni og við að háma í sig veitingar. Ég, Gísli #57 og Atli #669 nýttum okkur boðið í brautina og að venju vorum við sáttir en þó erum við alveg vissir um að brautin verður geðveik þegar vökvunarkerfið verður komið í notkun. Þó að það hafi ringt heilann helling í gær, þá var brautin farin að þurkast upp. Skilst að kerfið verði komið í notkun eftir nokkra daga, vonandi ( fyrir mig ) verður það þó ekki komið í lag fyrr en um mánaðarmót
, ég er nefnilega kominn í sumarfrí og ég er nokkuð viss um að þegar kerfið verður loks komið í notkun þá mun hellirigna í langan tíma, NEI SEGI BARA SVONA :)
Álfsnesbrautin er að detta inn eftir mikla endurnýjun að hálfu Reynis og Einars. Nokkrir ferskir úr Hondagóðaliðinu mættu eldsnemma í morgun til að hreinsa ýmislegt rusl úr brautinni í staðinn fengu menn og konur að keyra brautina á undan öllum öðrum. Mættir voru REinar ( Reynir og Einar ), Eyþór #11, Jón Bjarni #18, Atli #669, Karen #202, Hjalli #139, Gísli +Sara #57, Gummi Kort #99, Nikki og Biggi “Bróðir”. Þar sem ég var á morgunfundi hjá Vík gat ég ekki mætt í þessa skemmtisamkomu. En þar sem ég er gullagull fékk ég að testa brautina líka. Okkur þótti öllum að breytingarnar hafi tekist vel og erum þess fullviss að þetta verður frábært þegar kurlið hefur blandast moldinni betur.
Eitthvað var skotið af myndum en þó var bara litla heimilisvélin notuð og eru gæðin eftir því. Frúin og dóttirin sáu um afsmellinguna.
Takk fyrir skemmtilegann dag.
Annað kvöld er vinnukvöld í Bolaöldusvæðinu til undirbúnings fyrir Midnight keppnina, vonast til að sjá sem flesta þar. Margar hendur gera mikið verk að einföldu og skemmtilegu verki :O

Hjalli #139 í Álfsnesi

Atli #669 í Álfsnesi

Framtíðarökumaður Hondaliðsins Jökull Einarsson.

Karen #202 í Álfsnesi.

Eyþór #11 í Álfsnesi

HondaFly kallinn ” er verið að taka mynd af mér”

Biggi “bróðir” í Álfsnesi

Gummi Kort #99 í Álfsnesi.

Nikki í Álfsnesi.

Friðgeir #16 í Mosóbrautinn, sem er víst hans annað heimili þessa dagana.

HondaFly kallinn í Mosóbraut.

Gísli #57 í Mosóbraut.
HjÓli Gísla
Honda Racing
Nýjustu athugasemdirnar