Það er á tæru!!!!!!!!!!!!! Við erum best…..

En þar fyrir utan, gærdagurinn var einstaklega skemmtilegur fyrir okkar hönd. Eyþór gerði það sem hann var búinn að segja að hann gæti þ.e að halda Aroni #66 fyrir aftan sig. Við í Hondagóðaliðinu vorum hreint að rifna úr spenningi á kantinum og þar á eftir rifnuðum við úr stolti af drengnum. Ekki var síður spenna í kringum alla hina keppendur okkar, Gummi Kort fékk væna samkeppni en kláraði sitt með stæl. Unglingaflokkurinn er okkar og ekkert röfl með það, aðal spenna þar var á milli okkar manna, það var frábært að sjá okkar ökumenn kljást og gera það með virðingu í garð hvors annars án þess að gefa tommu eftir. Eins og sést hér fyrir neðan þá átti Eyþór daginn í MX2 en Gísli var líka að standa sig gríðarlega vel og átti góða möguleika á 3. sætinu en lenti í slæmri byltu í síðasta mótói sem eyðilagði þá möguleika. Stóru strákarnir okkar stóðu sig með sóma en þó hefði Hjalli átt að standa á verðlaunapalli ef óhappadísirnar hefðu ekki verið með honum í för, hann datt tvisvar í 1. mótói eftir að hafa leitt þar í góðann tíma, hann missti út frambremsuna í 2. motoi en náði þó loksins að sýna hvað í honum bjó í 3. mótói. Atli keyrði af öryggi allan tímann og stóð sig sem hetja.
Nú er MX 09 tímabilinu lokið og vil ég þakka öllum sem komu að okkar hópi fyrir frábært samstarf í sumar. Allir okkar keppendur lögðu blóð svita og tár undir til að ná árangri, allir foreldrar og aðstoðarmenn gerðu það sama. Bernhard - Honda þökkum við fyrir stuðninginn og samstarfið. Okkar stuðningsaðilum þökkum við kærlega fyrir allt, þar eru fremstir meðal jafningja: Motul - Hagkaup Garðabæ, Ölgerðin, Dunlop ásamt fleiri aðilum sem styrktu okkar ökumenn til keppni. Ykkar stuðningur hefur gert okkur keppnissumarið frábært.
Árangur okkar manna:
85cc flokkur
1. #99 Guðmundur Kort Íslandsmeistari 25 25
2. #102 Guðbjartur Magnússon 20 22
4. #671 Einar Sigurðsson 15 16
MX-Unglingaflokkur
1. #212 Hákon Andrason 22 25 25
2. #391 Björgvin Jónsson 20 22 22
3. #670 Bjarki Sigurðsson Íslandsmeistari 25 20 15
6. #18 Friðgeir Óli Guðnason 15 15 16
MX-2
1. #11 Eyþór Reynisson 25 25 25
4. #57 Gísli Þór Ólafsson 20 18 16
MX-1 open
1. #11 Eyþór Reynisson 22 22 22
8. #139 Hjálmar Jónsson 9 13 18
9. # 699 Atli Már Guðnasson 11 14 12
13. #57 Gísli Þór Ólafsson 10 9 5
Eftir mótið þá hittumst við heima hjá Reyni og Gerði og grilluðum okkur hamborgara, þar gerðum við okkur glaðann dag enda yfir miklu að gleðjast. Einhver fíflalæti voru í Honda Fly kallinum og veitti hann ýmis verðlaun í tilefni dagsins. Jón fékk plástursverðlaunin, Bjarki fékk dótabílinn, Reynir fékk Doddabók um vörubíla, Þorsteinn fékk Doddabók um þríhjól og Kortarinn fékk sápukúluframleiðslu. Allt var þetta í gríni gert og ástæðunum verður haldið innan hópsins.
Eitt er á hreinu að það voru þreittir en ákaflega sælir HONDAGÓÐIR sem lögðust á koddann í gærkvöldi.

Tilvonandi Hondagóður ökumaður ” Ég ætla að vera eins og Eyþór hrændi ”

Pilturinn hafði sko ástæðu til að brosa

Honda Fly kallinn var aðalega fyrir í gær en reyndi þó að gera eitthvað með “einari”

Feðgar að spá og spugulera “þarftu nokkuð þessa frambremsu” keyra bara hraðar.

Já er það svona sem meistarahjól er græjað!! Margir áhugasamir um það.

Þorsteinn Helgi ekki glaður að þurfa að hækjast á kantinum
Flottur þessi Hondagóði hópur.

Þeir fóru létt með 200 gramma alvöru BEEFFF burgers. Og sumir torguðu tveimur.

Hvað er þetta með þig gamli kall, gengur ekket að grilla hjá þér!!!! Óþolimóðir þessir guttar, halda að allt gerist í gær. En grillun er list og gerist ekki á augnabliki!!!!!!!! Reyndar fékk grillarinn smá grillvökva þá gekk þetta allt betur

Hirðljósmyndari motocrossins, hann hefur lánað okkur margar myndir á síðuna okkar. Úlpan hans er reyndar forljót, en það er allt annað mál. Takk fyrir allar myndirnar í sumar.
Team Honda Racing
Óli Gísla
Nýjustu athugasemdirnar