Enn safnast í íslandsmeistaratittlana hjá HONDAGÓÐUM

7 09 2009

Það er alveg á hreinu við erum bestir. Enda erum við líka flottastir  :)

Síðasta Endurómót sumarsins var haldi á Akureyri sl. Laugardag. Að venju voru okkar menn í toppsætunum.

í B flokki tók Hákon #212 sig til og ruslaði upp sumrinu hann sýndi það og sannaði að hann er bestur enda Íslandsmeistari 2009.

Í Tvímenning voru  Bjarki #670 Ágúst #299 að sýna það og sanna að þeir eru kóngarnir, þeir kláruðu mótið með stæl og standa uppi sem Íslandsmeistarar 2009

Einnig átti Guðbjartur Magnússon #102 ( litli gaskútur ) flottan dag. Hann stóð uppi með 2. sætið eftir daginn.

Rétt til að benda fólki á hversu flotta einstaklinga við erum með innan  okkar hóps!!!!!!!!!

Bjarki # 670þrefaldur Íslandsmeistari í sumar!!!! 1. titil úr snjókrossinu og tvo úr drullumallinu. Geri aðrir betur!!!.

Hákon #212 á ekki síður gott sumar að baki. Hann varð 2. til íslandsmeistara í MX unglinga og svo er hann enduromeistari í B flokki 2009.

Ekki má gleyma því að þessir strákar komast ekki þangað sem þeir eru í dag án hjálpar. Foreldrar og aðrir aðstandendur eru forsenda þess að þetta sé hægt.

Hondagott húrra fyrir okkur öllum.

 

21

Guðbjartur #102

670

Bjarki #670

299

Ágúst #299

212

Hákon #212

Team Honda Racing

Óli Gísla



HONDAGÓÐUR AFMÆLISDRENGUR

4 09 2009

Það er enginn annar en ÍSLANDSMEISTARINN Gummi Kort sem er afmælisbarn dagsins.

Drengurinn stefnir hraðbyrir í fullorðinsárin því að nú er hann 15. ára.

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Gummi, hann á afmæli í dag.

Til hamingju með daginn frá öllum í Team Honda Racing.

Allir að senda á hann kveðju í S: 849-6358

99



OLD BOYS Í KVÖLD!!!!!!! JÁ SÆLL ÞETTA ER FRÉTT…..

2 09 2009

Uppfærsla:

Ég ruslaðist upp í Mosóbraut í gærkvöldi til að horfa á og læra af hinum rómuðu kempum sem höfðu dustað rykið af tuggunum og gírnum. Mætingin var flott og keppnisskapið hafði verið tekið með :) .

Mættir voru: Varði - myndó, Keli - formó, Reynir - járnkarl, Haukur - unglamb, Einar - krassi,  Siggi - lopi, Steingrímur - fiskur, Pétur - Harði og einhver unglömb sem ekki komast ennþá í heldrimannahópinn. ( +40 )  

Þetta var alvöru æfing, það voru tekin stört, það voru tekinn blokkpöss, það voru tekin risastökk, það voru tekin risaskrubb, og til að kóróna allt þá voru líka tekin vipp. En reyndar er allt, sem er upptalið, það sem mönnum fannst þeir vera að gera :) . Varði virðist ekki hafa gleymt neinu, amk ekki keppnisskapinu, hann var konungur dagsins. Það er spurning um kombakk hjá kappanum til að sýna þessum kjúkklingum hvernig á að gera þetta. Reynir “Járnkarl” var ótrúlega öflugur og virðist járnaruslið í honum ekki vera til trafala. Einar “Krassi” krassaði ekkert og virðist ætla sér að hrista af sér þetta viðurnefni.

Hamingjan var svo mikil hjá köppunum, eftir æfinguna, að það var ákveðið að hafa OLD BOYS æfingar á þriðjudögum og fimmtudögum kl 18:00 núna í september. Eða á meðan birtan endist.

Ég er búinn að heyra af köppunum núna í morgun og menn eru stirðir og strengir á ýmsum stöðum sem þeir héldu að væru engir vöðvar. EN þetta var GAMAN

OLD BOYS ÆFING Í KVÖLD Í MOSÓBRAUT.

Allar gömlu kempurnar ætla að hamast saman í kvöld og sýna hverjum örðum góða takta.

Meiningin er að mæta uppúr 18:00. og láta svitann streyma það vel að ekki þurfi að vökva brautina vel og lengi.

Heyrst hefur að Reynir #3 fari á bak, Varði sömuleiðis, Einar “krassi” og margar kempur hafa tilkynnt mætingu.

Hvet ungviðið til að mæta og læra af reynsluboltunum. Þessir gömlu kunna ýmislegt ” eða amk kunnu” ýmislegt.

Vonandi verða þeir allir með hjálparfólk á kanntinum til að klæða sig í gallana og lyfta sér upp á hjólin.

Áhorfendur verða að vera duglegir að hjálpa til við að hreinsa “líkin” úr brautinni þegar líður á kvöldið.

HjÓli Gísla

Honda Racing.



BRAUTIR

2 09 2009

Þar sem að ég er ekki hjólafær þessa dagana er áhuginn á skriftum ekki mikill. :(    ( Vantar í mig hjóla-andann )

En þó!!!! þar sem mig er farið að kitla í bensínhendina ( sem er þó ónothæf ) þá skrapp ég í brautarskoðun í gærkvöldi.

Bolaöldubraut er í fínu standi, að sögn Hákons #212, þá er hún svolítið hörð. Brautin var nývökvuð þegar ég kom í gærkvöldi og leit bara ansi vel út.

Mosóbrautin var skoðuð líka og dauðlangaði mig að prófa hana þar sem að það er búið að breyta henni slatta. Það verður spennandi að prófa þegar ég get hjólað aftur.

Langasandskeppnin er á dagskránni núna 19. sept og er það í 4. sinn sem hún er haldin. Fyrir mig er mjög gaman að sjá að þessi afurð mín er búin að festa sig í sessi. Skagamenn eru að vanda með ýmislegt í pokahorninu til að hafa þetta spennandi og skemmtilegt. Sjá dagskránna hjá þeim HÉR.

Ég vil hvetja alla Hondagóða til að vera dugelgir að hjóla, það er ekki kominn vetur ennþá og um að gera að nýta sér veðrið meðan það er gott.

Hondagóðir stefna á að vera með þrekæfingarnar aftur í vetur en erum ekki komin með öruggan sal í það verkefni. Nánari fréttir af því koma hér þegar það skýrist.

HjÓli Gísla

Honda Racing