Bjarki Sigurðsson er líka akstursíþróttamaður MSÍ 2009

18 11 2009

Enn ein rósin í hnappagatið hjá Bjarka :O)

Þess má líka geta að Eyþór Reynisson var einnig tilnefndur í þessu vali, en sjá má listann hér:
Tilnefnd:

  • Aníta Hauksdóttir, Íslandsmeistari MX kvenna 2009.
  • Signý Stefánsdóttir, Íslandsmeistari í Ískross kvenna, 36.sæti í heimsmeistaramótinu.
  • Aron Ómarsson, Íslandsmeistari í MX-Open og landsliðsmaður.
  • Eyþór Reynisson, yngsti keppandi í Íslandsmóti til að vinna MX-Open keppni.
  • Kári Jónsson, Íslandsmeistari í Enduro, 5.sæti í MX-Open.


Bjarki Sigurðsson í Team Honda er íþróttamaður ársins hjá KKA 2009

13 11 2009

img_3052.jpg

Hann Bjarki Sigurðsson í Team Honda er íþróttamaður ársins hjá KKA 2009

Tillagan var samþykkt einróma í stjórn KKA og á aðalfundi félagsins.

 Um Bjarka má hafa langan pistil,   hann er til fyrirmyndar bæði sem félagi,  félagsmaður og keppnismaður.   

Hann er þrefaldur íslandsmeistari fyrir KKA á tímabilinu eins og margoft hefur komið fram á vefnum www.kka.is

en ekki spillti fyrir hversu mikill fyrirmyndarmaður Bjarki er á öllum sviðum. (tekið af www.kka.is)

   

 

Við hjá Bernhard ehf óskum Bjarka og fjölskyldu hans sem stendur sem klettur við bakið á honum í mótorsportinu innilega til hamingju með frábæran árangur.