21
04
2010
Sl sunnudag var Bolaöldubrautin opnuð. Það minnti hellst á þegar er verið að hleypa kálfum út á vorin að sjá hamaganginn í brautinni. Að sjálfsögðu voru Hondagóðir fjölmennir í brautinni. Við fengum nokkrar mydnir lánaðar hjá Sveppagreifanum. Það er alltaf svo gott að hafa frábærann hirðlljósmyndara á kanntinum.

Sölvi á nýju tuggunni sinni
Lesa meira… »
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
21
04
2010
Team Honda Racing mun keyra um á DUNLOP togleðurshringjum í sumar.
Við höfum mjög góða reynslu af þessum dekkjum frá síðastliðnu sumri og fögnum áframhaldandi samstarfi við dekkjadeild Heklu sem er umboðaaðili Dunlop á Íslandi.
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
9
04
2010
Því að hjólin eru að klárast.
Eyþór Reynis og Reynir Jóns voru að fá tuggurnar sínar í gær.

Og heyrst hefur að þeir feðgar hafi tekið til við preppun á tuggunum í gærkvöldi. Og að taka eigi þær til brúks núna um helgina. Eins gott að allir fari frá þegar Reynir kemur því hann er víst helillur og þrælköttaður eftir hörku æfingaferð til Belgíu. Reyndar hefur greinarhöfundur heyrt af því að æfingarnar hafi næstum farið úr böndunum amk við líkamsástand á kvöldin. “En sögur eru ekki alltaf réttar”
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
6
04
2010
Og nú er snjómaðurinn í norðri búinn að fá sinn grip í hendurnar. En miðað við veðurfarið á norðurlandinu lýtur ekki út fyrir að hann testi gripinn næstu daga.

Takiði eftir nýbónaða gólfinu!!!! Svona er þetta víst alltaf hjá Sidda. Partífært í bílskúrnum.
Athugasemdir : 1 athugasemd »
Flokkar : Fréttir
5
04
2010
Með því að mæta í Mótómos, laga til brautina, hreinsa grjót og annað sem þykir ekki gott í MX braut. Að sjálfsögðu voru Hondagóðir mættir fyrstir manna til að vinna, enn ekki hvað….. Mættir voru: Gísli #57, Hjalli #139, Bjöggi #391, Atli # 669, Friðgeir #16, Óli #378 og Guðni Mótómosforingi, ásamt fullt af öðru góðu hjólafólki. Allir voru viljugir í því að græja brautina til að hægt væri að eiga góðann dag í tæknilegri braut. Brautin er að koma ótrúlega vel undan vetri og var vel nothæf eftir að búið var að hreinsa draslið úr henni. Einnig jarýtaðist Mótómosforinginn í verstu köflunum. Frábær dagur og ekki var veðrið að skemma fyrir. Hondagaman saman.

Hjalli #139

Gísli #57

Bjöggi #391

Friðgeir er búinn að vera veikur og gat ekki hjólað.

Endurfæddur Hondagóður. Atli #669
Þökkum Sveppagreifanum fyrir myndirnar, gott að geta reitt sig á flottann ljósmyndara þegar myndavélin gleymist heima.
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
Nýjustu athugasemdirnar