Smá myndabull frá s.l dögum.

30 05 2010

bland-010-copy.JPG

Fyrir Klaustur, Gísli gataði vélarhlíf og við skiptumst á að brúka mitt hjól í Bolaöldubraut.
bland-014-copy.JPG

Brumm brumm og Karen eltir.
bland-022-copy.JPG

Kallinn með nokkuð góðan stíl.
bland-027-copy.JPG

Gísli fékk flottann Fly galla í úrtskriftargjöf. Eins gott að þessi mynd var tekin áður en hann fór að hjóla. Krass bamm búmm!
bland-028-copy.JPG

VÍFA með reglurnar á hreinu.
bland-030-copy.JPG

Tuggurnar þurfa líka að fá að borða eftir átök í  VíFA brautinni.
bland-034-copy.JPG

Gísli í take off á steppupp.
bland-032-copy.JPG

Ekki vandamálið.
bland-037-copy.JPG

Gísli í take off á stæðsta pallinum í Vífa brautinni.
bland-035-copy.JPG

Hann náði að halda hjólinu vel niðri þó að uppstökkið vísaði til himins.
bland-042-copy.JPG

Nett svif.

Óli Gísla



Já sæll, búinn að versla dekk fyrir Ólafsjörð?

26 05 2010

Ég er búinn að því. Þvílíkt flott Dunlop MX11 sandekk sem ég varð mér úti um….

image0011.jpg
Þetta dekk mun grípa hrikalega vel. Ekki vildi ég vera fyrir aftan þegar þetta skófla upp :)



Klaustur… ógeðslega skemmtileg.

25 05 2010

Hondagóðir áttu frábærann dag á Klaustri. Öllum okkar ökumönnum gekk vel. Að sjálfsögðu gengur þessi keppni út á það að hafa gaman af því að hjóla og glíma við ýmsar aðstæður sem við lendum ekki í daglega. Og við fengum slæðing af því. Mýrin tók á en á sama tíma var svakalega gaman að glíma við hana. Svona eftir á amk held ég að öllum hafi þótt lúmskt gaman að takast á við hana. Einhverjir festust, einhverjir urluðust á hausinn með miklum gusudrullugangi :) Einhverjar kúpplingar steiktust og jafnvel gáfu einhverjir mótorar eftir, einhverjir drektu meira að segja hjólunum sínum. EN þetta var gaman. Tala nú ekki um þegar var búið að taka mýrina út, þá var þetta algjört reis. Og það passaði flestum okkar betur þar sem við erum aðallega hringbrautamallarar. Að sjálfsögðu voru Hondagóðir til fyrirmyndar, að venju.Við þökkum landeigendum fyrir afnot af svæðinu, VÍK fyrir að halda keppnina og síðast en ekki síst öllum stafsmönnunum fyrir að nenna því að vinna við svona frábæra keppni fyrir okkur.

Ég verð að hrósa Dunlop dekkjunum, ég valdi mér 773 dekkin fyrir mótið og varð ekki fyrir vonbrigðum, gripið var þvílíkt að erftitt var að hemja 450 tugguna þegar snúið var upp á rörið, tala nú ekki um i mýrina, þar spaðaðist dekkið áfram og bjargaði því sem hægt var að bjarga í gripi. Sennilega hefði samt verið best að hafa MX11 dekkin í mýrinni en þá bara þar. Framdekkið kom mér sífellt á óvart og gaf mér mikið sjálfstraust í beyjunum með frábæru gripi. Óli Gísla
Mr Mekki.
mekki Lesa meira… »



Klaustur

18 05 2010

Hæ Hondagóð.

Varðandi Klausturskeppnina!
Á einhver möguleika á að taka með sér Honda tjöldin? Ég er með fullan bíl af drasli og kem þeim ekki fyrir.
Það munar mjög mikið um það fyrir okkur að fá skjól af tjöldunum meðan keppnin stendur yfir, sérstaklega þegar er verið að þjónusta hjólin, tala nú ekki um fyrir alla aðdáendur okkar, mömmur og pabbar ofl.

Tjöldin eru í Bernhard Vatnagörðum, Hlynur vísar ykkur veginn á þau.

Endilega látið mig vita með hvort þið hafið ekki laust pláss.
Nú ef ekki þá verðum við bara að hýrast úti.

Mbk.
Óli

PS:
Ég mun reyna að taka frá fyrir okkur pittsvæði og afmarka það með Honda borða.



Ógeðslegt! Munntóbak Nei Takk!

14 05 2010

G Kort

Flott átak hér í gangi og okkar maður glæsilegur í því.

Það er ekki bara ógeðslegt að nota munntóbak, það er líka mjög vanabindandi sem þíðir að þú verður fljótt háð/ur…
SLEPPTU ÞVÍ!
Þetta er yfirskrift á átaki sem fór í gang hjá Krabbameinsfélagi Hafnarfjarðar fyrir stuttu.
Guðmundur kort #99 var fenginn til að taka þátt í átakinu ásamt öðru ungu afreksfólki úr íþróttafélögum í Hafnarfirði.
Í átakið var fengið afreksfólk sem eru verðugar fyrirmyndir og vert að líta upp til. Ætlunin er að birta myndirnar og átakið á sem flestum opinberum stöðum og berjast gegn notkun munntóbaks, sem er jú bara ógeðslegt.
Hér er linkur á myndir af þeim sem tóku þátt í átakinu.
Alcan, Fjarðarkaup, Hópbílar, Aðalskoðun og Hafnarfjarðarbær styrkja átakið.
Guðmundur Kort #99 þakkar Nitró, Mxsport.is, Tæki.is, bernhard ehf, Hekla Dunlop hjólbd. Shark energy drink, Létt & Gott Lögg ehf. veittan stuðning.





Síður (2): [1] 2 »