27
06
2010
Bjarki #670 er fyrsta og vonandi síðasta fórnalamb í krassdeild Team Honda Racing þetta sumarið. Hann tók slæma byltu í Lex Games í gær og braut í sér viðbein. Þar sem ég er aðeins kunnugur þannig meiðslum, þá veit ég að þessi meiðsli eru ekki skemmtun fyrir fimm aura. Lítið að manni, fullt af verkjum, vont að sofa, ofl ofl. En pilturinn er ungur og harður af sér og fer létt með svona smáræði. Hann verður kominn á hjólið aftur áður en við vitum af.
Bata og baráttu kveðjur frá liðsfélögum.

Óli Gísla
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
27
06
2010
Örfáir úr Hondagóðaliðinu skelltu sér í Akrabraut í gær og dag. Brautin er ný búin að fá yfirhalningu, einnig hafði ringt passlega mikið í hana á föstudeginum. Skagamenn höfðu gert nokkrar breytingar á brautinni sem lofuðu góðu. Þegar á reyndi virkuðu sumar af þeim ekki sem skildi þar sem nýjasti hluti brautarinnar var of rakur. Í dag var tekið til við smá lagfæringar á því svæði og voru Hondagóðir þar til ráðgafar. Breytingarnar tókust ágætlega en virka væntanlega ekki að fullu fyrr en nýja svæðið þornar betur. Að venju voru nokkrir svellkaldir Skagamenn mættir og að sjálfsögðu allir á Hondum
, hvað annað! Þökkum Skagamönnum fyri skemtilega helgi.
Gísli #57 í flugtaki.
Lesa meira… »
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
22
06
2010
Nokkur atriði sem þeir telja að bæti hjólið verulega.
Motocross Action, Grein.
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
13
06
2010
Við meigum vænta þess að strákarnir okkar verði fastagestir verðlaunapöllum í sumar.
TEAM HONDA RACING 85cc flokkur. Framtíðarmeistararnir okkar.
Einar Sigurðsson #671. Hrikalega efnilegur framtíðarökumaður frá fjallahéruðum Íslands.

Guðbjartur Magnússon #12. Þessi kemur af flatlendinu er gas-alega efnilegur og ætlar sér stóra hluti í sumar.

Þorsteinn Helgi Sigurðsson #815. Þorlákshafnarbúinn. Sandur er hans líf og yndi og hann á eftir að standa sig hrikalega vel í sumar.
Lesa meira… »
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
6
06
2010

Nýjasti meðlimur Team Honda Racing í aðlögun.
Við fengum ágætt veður, fengum frábærlega áskorandi braut, það var rosalega gaman og allur hópurinn var samstilltur í því að hafa skemtilegann dag. Við lentum þó í tjónum með hjól, sem er alltaf leitt, þó slasaðist enginn, sem er gott. Við áttum sigurvegara í röðum og er þá helst þar að telja framtíðarmeistarana okkar í 85cc flokknum. Þeir röðuðu sér í öll topp sætin þar. Unglingaflokkinn áttum við tvö af þremur sætum, MX 2 áttum við tvö sæti, MX open áttum við tvö sæti. Við erum öll að rifna úr stolti af strákunum okkar. Frábær hópur og tala nú ekki um foreldrana, tjöldin upp á 01. og niður á 01. engin vandamál. Takk fyrir frábæra helgi.
Óli Lesa meira… »
Athugasemdir : Engar athugasemdir »
Flokkar : Fréttir
Nýjustu athugasemdirnar