Álfsnes keppnin 2010

8 07 2010

Að venju áttum við marga á verðlaunapalli. En því miður ekki eins marga og á Ólafsfirði. Enginn okkar keppenda meiddist að þessu sinni, sem betur fer, en þó eru einhverjir með marbletti hér og þar. En það er nú bara svona keppnis.
Við erum með flottasta 85cc hópinn. En þeir rusluðu þessu upp og hirtu öll sætin. Glæsilegir fulltrúar okkar þar.
85 cc

  1. Guðbjartur Magnússon
  2. Þorsteinn Helgi Sigurðarson
  3. Einar Sigurðsson

Í unglingaflokki átum við bara einn viningshafa að þessu sinni, en glæsilegur var sigurinn hjá honum. Björgvin átti frábært fyrsta móto og tók seinna af öryggi í 2. sæti. Þvílik framför s.l. ár hjá þessum dreng.

Unglingaflokkur

  1. Björgvin Jónsson

Í MX2 flokknum áttum við ekki fullskipað lið þar sem Bjarki er viðbeinsbrotinn og Sölvi taldi sig þurfa að lána löggunni ökuskírteinið sitt í bili. Hvort drengurinn er svona góðhjartaður skal látið á milli hluta. En Eyþór sá til þess að við færum ekki tómhent úr þessum flokki  og landaði 1. sætinu með glæsibrag, þurfti reyndar að hafa fyrir því núna þar sem hann þurfti að taka nokkur jarðvegssýnihorn fyrir pabba sinn svona rétt á meðan mótóonum stóð. ?
MX2

  1. Eyþór Reynisson.

Að þessu sinni náðum við ekki manni á pall í MX Open. En það var af einskærri góðmennsku hjá okkur, svona til að aðrir kæmust að. En bara í þetta eina sinn.

Allur keppnishópurinn stóð sig með príði. Að venju voru aðstandendur og aðstoðarmenn til séstakrar fyrirmyndar á svæðinu. Allir tilbúnir að hjálpa, kvetja og standa saman.

Takk fyrir frábærann keppnisdag. Frábæra braut og einstaklega gott skipulag varðandi flöggun á pöllum.
Team Honda Racing
Óli Gísla

PS:

 Fór beint í sumarbústað eftir keppnina, þar af leiðandi dróst að skrifa um okkar frábæra hóp. Sorrý.


Aðgerðir

Upplýsingar

Skildu eftir athugasemd

Þú getur notað þessa kóða : <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong>