Fjör í Hondapark ( Bolaöldu) í dag.

18 07 2010

Það varð ekki hjá því komist að kalla Bolaöldu, Hondapark, í dag þar sem að fyrstu klukkustundirnar leit brautin út sem einkabraut Hondaliðsmanna. Á svæðið mættu fyrstir manna Gísli #57, Hjalli #139 og Óli Gísla. Að sjálfsögðu eru Honda menn hressustu og sprækustu hjólamennirnir. Hvað annað….. í hópinn bættust síðan nokkrir á óæðri tegundum og að sjálfsögðu fleiri Hondagðóðir hjólarar. Það var “gugga” í sólbaði á kantinum, menn að gera við punkterað og að venju spjallklúbbar við hvern bíl. Brautin var ótrúlega góð m.v veðurfar undanfarina daga. Reynt var að vökva hana eftir því sem vantsbirgðir leyfðu en það var eins og að setja vantsdropa í Atlantshafið = breytti litlu. Gaman saman, amk þangað til að Gísli #57 tók krassið á stóra pallinum. í þessum skrifuðu orðum er ekki vitað hversu mikið Gísli er meiddur, þar sem að biðtími slysadeildar er óheyrilega langur, eftir 4 klst var hann enn að bíða eftir því að komast í skoðun og myndatöku.

bolaalda-18-07-10-003-copy.JPG

Flottar þessar Hondur og einn sem langar hrikalega mikið að verða Hondagóður hjólari. Er reyndar bara Hondagóður dekkjasprengjari enn sem komið er.

bolaalda-18-07-10-005-copy.JPG

Já já, Hondagóð gugga, á kanntinum í sólbaði

bolaalda-18-07-10-016.JPG

Gísli #57 á fullu gasi á stóra pallinn ( krass pallinn sinn )

bolaalda-18-07-10-014.JPG

Atli #669 Á leiðinni í skrubb á stóra pallinum.

bolaalda-18-07-10-012.JPG

Hjalli #139 í flugtaki á stóra pallin.
bolaalda-18-07-10-008.JPG

2t Tugan hjá Atla er ekki mikið fyrir það að liggja með framdekkið niðri.
bolaalda-18-07-10-011.JPG

Hjalli að athuga með frambrettið hjá sér.
bolaalda-18-07-10-020.JPG

Ekki er vitað um nafnið á þessum Hondagóða manni.


Aðgerðir

Upplýsingar

Skildu eftir athugasemd

Þú getur notað þessa kóða : <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong>