Sólbrekkukeppnin 2010
24 07 2010Fyrir Hondagóða var keppnin einfaldlega FRÁBÆR!!!!!!
Okkar piltar voru frábærir í öllum flokkum, nema að sjálfsögðu þeir sem voru slasaðir á kantinum.
MX 85.
Guðbjartur #12 átti frábærann dag þrátt fyrir að hafa meitt sig illilega á vinstri ökkla í fyrsta mótoi. Drengurinn er algjör járnkarl og lét það ekki á sig fá og ruslaði upp flokknum með glæsibrag. Að sjálfsögðu landaði hann fyrsta sæti að venju.
Þorsteinn Helgi #815, er okkar meistarakanditat # 2 og átti frábærann dag, sýndi það og sannaði að hann verður okkar besti maður á næsta ári. Á jafnvel eftir að landa 1. sæti í ár ef Guðbjartur misstígur sig.

Einar Sig #671. Er okkar tilvonandi titilhafi, frábært að eiga svona æðislega drengi innan okkar raða. Pilturinn átti frábæran dag en var einungis hársbreidd frá 3. sætinu. Það er ekki slæmt að mæta til keppni með þá fulvissu að einn eða fleiri úr okkar hópi muni örugglega standa á verðlaunapalli í MX 85cc.
Björgvin Jóns #391 hefur átt betri daga í ár, en Sólbrekkan virðist ekki hafa átt vel við kappann þetta árið. En þó var Hondagóða eljan við völd hjá honum og landaði hann 3. sæti með miklu harðfylgi. Austfjarðarþokan var tekin með í pokann til að nota ef í harbakkann myndi slá.
Eyþór #11 hélt uppi heiðri okkar í MX2 flokknum. Drengurinn ætlaði að venju að rusla þessu upp og vinna allt sem hægt væri. Í þeirri herferð hans voru ýmsar hindranir sem voru þó helst þær að hann ætlaði sér aðeins meira en hjólið og aðstæður buðu uppá. Að sjálfsögðu var hann í 1. sæti í MX 2.
Hjálmar #139 var okka von og trú um verðlaunasæti í MX open. Pilturinn stóð undir okkar væntingum og tók 2. sætið með glæsibrag. Sú vegferð var ekki tekin með auðveldum hætti þar sem tuggan hanns spýtti úr sér dempara pakkningum eins og þær væru eldgamalt tyggi-gúmmí. Að venju eru Hondagóðir ekki í vandræðum með að leysa þannig þrautir. Eysteinn # 617 lánaði Hjalla dempara eftir að hann hafði klárað MX B með glæsibrag. ( Þó hefur vinnan verið að trufla áhugamálið hjá Eysteini með þeim afleiðingum að hann endaði ekki á verðlaunapalli að þessu sinni. ) Hjallarinn landaði 2. sæti með glæsilegum akstri.
Þá er komið að þætti slysadeildarinnar innan Hondagóða liðsins:::
Gísli # 57 tók stóra krassið fyrir viku en ætlaði sér að vera með, enda voru s.l tvær keppnir ekki þær bestu sem hann hefur átt á sínum keppnisferli. Því miður var öxlin á honum ekki á sama máli og hann varð að draga sig úr keppni eftir tímatökuna. Við meigum eiga von á honum hel illum á MX Akureyri í byrjun ágúst.
Bjarki #670 er sennilega einn af bestu “pitt bord PÍUM” á Íslandi. Spurning um hvort að hann sé ekki bestur þar áfram, hvetjandi mann og annan. NEI!!! held nú ekki. Hondagóðir vonast eftir því að sjá piltinn sem fyrst á ráslínu til þess að fá alvöru keppni í MX 2 flokkinn.
Team Honda Racing þakkar fyrir frábærann dag, frábæra og tæknilega braut, yndislega og jákvæða foreldra innan liðsins, frábært stafsfólk. Og síðast en ekki síst frábærann liðsanda. Það er ekki slæmt að vera þáttakandi í svona glæsilegri liðsheild.
Team Honda Racing
Óli Gísla
PS:
Það langar mörgum að lauma sér inn í svona æðislega liðsheild!!!
Mekkarnir að standa sig með prýði.
Keppniskallar á spjalli fyrir mót: ( Eyþór…. Nei ég segi þér ekki leyndarmálin mín…. )
Svona hefur liðstjóri “Norðanheiða” það þegar hann hefur bara yfir einum keppanda að ráða.
Hvaða helvítis aumingi var eiginlega að gera við demparana í þessu hjóli!!!!!!!!
THR pitt cruw að skipuleggja keppnisáætlun.
Mekkarnir að störfum.
Þessi mekki var ekki alveg með á nótunum enda ný kominn frá sjóðheitri sólarströnd og enn með sólsting. Eða ekki með á nótunum……..
Gerður með “Ragga Bjarna” hnykkju vegna Hjalla.
Takk fyrir mig.



Nýjustu athugasemdirnar