Olíur

Pro Honda olíur

pro_honda.JPG

Mótorolía. Hér verður farið yfir hvernig best er að eiga við olíur á Honda motocross hjólum. Eins og flestir vita þá er olían á fjórgengis Honda hjólum í tveimur hlutum. Annar helmingurinn smyr vélina og hinn helmingurinn gírkassa og kúplingu. Aðalástæðan á bakvið að hafa tvískipta olíu er að sjá til þess að vélin nái ekki að senda skemmda olíu til gíranna og öfugt. Metnaðarfullir framleiðendur hafa á boðstólnum olíu sem uppfyllir skilyrði þeirra sem vilja ná hámarksafköstum og hámarksendingu út úr hjólinu. Við mælum við með að notuð sé vönduð olía og er Pro Honda þar fremst í flokki.

Motorolía.
GN4 hálf-synthetic SAE 10W-40.
Hágæða PRO Honda mótorolía fyrir fjórgengis hjól.
Sér hönnuð fyrir mótorhjól, bæði mótor og gírkassa.
Klístrast ekki inn í kúplingsdiska.
Þolir hærra hitastig en venjulegar bílaolíur.
Má nota á gírkassa á tvígengishjólum.
Honda racing team notar þessa olíu.

gn4_10-40w.jpg

Dempara olía:
HP 5W
Hágæða PRO Honda demparaolía ætluð á öll motocross hjól.
Notuð af Honda racing team út um allan heim.


fork-oil.jpg
Loftsíuolía. Mótorinn í hjólinu þínu þarf tvennt til að komast í gang. Bensín og hreint loft. Hreint loft er lykilatriði til að hjólið gangi vel. Þá notarðu:Hágæða PRO Honda loftsíuolíu fyrir allar svampasíur.
Tekur vel óhreinindi hleypir ekki vatni í gegnum sig.
Eyðist ekki upp þó að bensín fari saman við hana.
Eykur kraft og endist lengi.
engin_mynd.jpg

Bremsuvökvi.
DOT 4 BRAKE FLUID
Hágæða PRO Honda bremsuvökvi fyrir öll mótorhjól er með sérstaklega hátt suðumark.
Má ekki blanda saman við Dot 3 eða Dot 5 bremsuvökva.
Honda racing team notar þennan vökva.


bremsuvokvi.jpg

Bremsudiskahreinsir.

Hágæða PRO Honda bremsuhreinsir tekur vel fitu skemmir ekki vinyl, lakk eða plast. Góður til að hreinsa keðjufeiti sem fer út fyrir.
Ekki eldfimur.
Honda racing team notar þennan hreinsir.


bremsuhreinsir.jpg

Lím fyrir handföng.

Handgrip cement.
Öflugt PRO Honda lím fyrir gúmmí handföng,fótstig eða gírpedala. Ofboðslega sterkt lím sem endist.

Honda racing team notar þetta lím.


lim-fyrir-handfong.jpg

Gírkassa olía á tvígengis hjól.

HP SAE 80W/85W
Hágæða PRO Honda olía fyrir gírkassa á tvígengis hjól.
Rauð Honda sjálfskiptiolía sem freyðir ekki gefur mýkri skiptingu og eykur endingu á kúplingsdiskum.
Honda racing team notar þessa olíu.


trans-oil.jpg

Pro Honda olíurnar eru í algjörum hágæðaflokki. Þegar þú hefur keypt þér keppnishjól sem þú vilt að komi þér fyrst yfir marklínuna er rétt að kaupa hágæðaolíur og skipta um á réttum tímum.Honda liðið hefur undanfarið verið með eftirfarandi viðmið við olíuskipti á Honda CRF 250R og CRF 450R.10 klst aksturstími: Olía á vél
10-20 klst aksturstími: Olíusía30 klst aksturstími: Olía á gírkassa
pro_honda.JPG
bernhard.bmp
Pro Honda olíurnar fást hjá Bernhard ehf Vatnagörðum 24-26, 104 Reykjavík. Sími 520-1100
heimasíða Bernhard ehf

5 athugasemdir til “Olíur”

14 03 2007
joikef (13:38:20) :

mæli bara með þessum vörum,,, besta sem ég hef notað á mitt hjól

3 04 2007
Helgi (17:29:15) :

hvar getur maður pantað þessar olíur? hjá bernhard eða?

8 01 2009
sigurður kristjánsson (23:34:35) :

Hvar fæ eg hondamatic eða atf-z1 sjálfskiftinga vökva ?

9 01 2009
oli (09:19:13) :

Prufaðu að tala við varahlutaverslunina hjá Bernhard s: 520-100.

15 07 2009
KGM - MXsport.is (17:45:54) :

Bara að benda á að No-Toil framleiðir Pro Honda loftsíuolíuna undir private label. Algjörlega sama olían og No-Toil framleiðir undir sínu vörumerki, sama flaskan og allt nema miðinn.

Honda prófaði loftsíuolíuna frá No-Toil í 8 mánuði áður en þeir skrifuðu undir svo þeir testuðu hana út og suður.

kv,
KGM

Skildu eftir athugasemd

Þú getur notað þessa kóða : <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong>